Back to results

Reykjavík University

Skipulag, framkvæmd og úrvinnsla við notendaprófanir

Abstract

dc:description.abstract

Við gerð hugbúnaðar þarf að tryggja að hann sé auðveldur í notkun og tillölulega gallalaus áður en hann er settur á markað. Notendaprófanir eru því mikilvægur partur af hugbúnaðargerð. Tilgangur: Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna hvernig íslenskir fagaðilar í hugbúnaðargerð nýta aðstoð notenda til að auka gæði hugbúnaðarins og hvernig notendaprófanir í íslenskum hugbúnaðariðnaði fóru fram árið 2016. Framkvæmd: Rannsóknin byggðist á viðtölum við tólf aðila, sem starfa hjá níu mismunandi íslenskum fyrirtækjum í hugbúnaðariðnaði. Viðtölin voru hálf-opin (e. semi-structured). Notaður var staðlaður spurningarlisti til að gæta samræmis í viðtölunum en spurningarnar voru þó aðlagaðar að svörum viðmælenda. Til að tryggja gæði við úrvinnsu gagna, tóku báðir rannsakendur þátt í að greina þau. Gögnin voru greind með þemagreiningu. Niðurstöður: Rannsóknin sýndi að flestir viðmælendur framkvæmdu notendaprófanir á svipaðan hátt. Allir viðmælendur voru þeirrar skoðunar að notendaprófanir hefðu marga kosti. Flestir studdust við fræðilega þekkingu við framkvæmd notendaprófana en aðlöguðu þó aðferðina að eigin þörfum. Allir viðmælendur myndu vilja framkvæma notendaprófanir oftar, en meirihlutinn bar við tíma- og fjármagnsskorti.Helstu kostir notendaprófana að mati viðmælenda voru, aukin samskipti við notendur, endurgjöf notenda, að öðlast mælanleg gögn og aukinn skilningur hugbúnaðarteymisins á notkun hugbúnaðarins hjá notendunum. Helstu ókostir notendaprófana að mati viðmælenda voru, notandendur voru settir í óraunhæft eða óraunverulegt umhverfi, erfiðleikar við að finna notendur og að prófanir eru almennt tímafrekar og dýrar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Birgitta Ósk Rúnarsdóttir 1988-
  • Sara Rós Kolodziej 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26854
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26854

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birgitta Ósk Rúnarsdóttir 1988-; Sara Rós Kolodziej 1993-. Skipulag, framkvæmd og úrvinnsla við notendaprófanir. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26854