Back to results

Reykjavík University

Siðferði endurskoðenda

Abstract

dc:description.abstract

Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að rannsaka hvort siðareglur Félag löggiltra endurskoðenda (FLE) hafi áhrif á störf endurskoðenda, ásamt því að skoða hvort viðeigandi sé að endurskoðendur fái gjafir eða önnur hlunnindi frá viðskiptavini. Hvort almenningur sé nægilega vel upplýstur um störf og skyldur endurskoðenda og hvort óhæði endurskoðenda á Íslandi sé alltaf gætt. Þessi viðfangsefni voru skoðuð annars vegar frá sjónarhorni endurskoðenda og hins vegar frá sjónarhorni almennings. Megindlegri rannsóknaraðferð var beitt og voru tveir spurningalistar samdir og settir upp. Í lokin var svo gerður samanburður á svörum þessara tveggja hópa. Þátttakendur voru alls 243 einstaklingar, en þar af var 141 einstaklingur endurskoðandi og 102 einstaklingar almenningur. Í fræðilega hlutanum verður meðal annars fjallað um hlutverk og ábyrgð endurskoðenda, siðferði, siðareglur og óhæði endurskoðenda. Meginniðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að siðareglur FLE hafa jákvæð áhrif á störf endurskoðenda. Ekki þykir viðeigandi að endurskoðandi þiggi veglegar gjafir eða önnur hlunnindi frá viðskiptavini en þó var meirihluti þátttakenda sem taldi viðeigandi að þiggja smávægilega gjöf eða önnur hlunnindi. Niðurstöður sýndu einnig að meirihluti þátttakenda telur að endurskoðendur geti verið algjörlega óháðir í starfi sínu á Íslandi. Rannsóknin leiddi jafnframt í ljós að almenningur er ekki nægilega upplýstur um störf og skyldur endurskoðenda og töldu bæði endurskoðendur og almenningur að þörf sé á vitundarvakningu meðal almennings um störf og skyldur þeirra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Helga Rós Benediktsdóttir 1988-
  • Jenny Skagfjörð Einarsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26728
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26728

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Rós Benediktsdóttir 1988-; Jenny Skagfjörð Einarsdóttir 1991-. Siðferði endurskoðenda. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26728