Back to results

Reykjavík University

Lífsstílsbreytingar handbók : verkfæri í átt að bættum lífsstíl við að sleppa takinu á umfram þyngdinni

Abstract

dc:description.abstract

Yfirþyngd og offita er mikið í umræðunni hér á landi og jafnvel talað um faraldur í þeim efnum. Vandinn hefur aukist undanfarin 20 ár og getur hann haft margar afleiðingar í för með sér. Allt frá skerðingu á lífsgæðum út frá andlegum, líkamlegum og félagslegum þáttum yfir í að vera valdur að dauða fólks. Orsakir offitu geta verið samspil margra þátta eins og félagslegra, umhverfis og efnahagslegra ásamt lífeðlisfræðilega og erfðafræðilega þátta. Ekki hefur fundist hin eina rétta leið úr yfirþyngd og offitu og má ætla að hin eina rétta leið sé ekki til, þar sem ólíkar ástæður liggja að baki þyngdar hjá hverjum og einum. Því þarf að mæta fólki með ólíkum hætti. Rannsóknir hafa sýnt fram á margar aðferðir sem eru gagnlegar fyrir einstaklinga sem eru að takast á við yfirþyngd og offitu. Má þar nefna aðferðir sem miða að því að breyta hegðun og venjum, markmiðsetning og hugræn atferlismeðferð. Þessar aðferðir felast til dæmis í að borða fjölbreytta fæðu reglulega yfir daginn, stunda reglulega hreyfingu í því formi sem einstaklingurinn hefur gaman af, gæta þess að streitu sé haldið innan ákveðinna marka sem og að svefn sé nægur. Ljóst er að taka þarf tillit til margra þátta þegar einstaklingur breytir um lífsstíl.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rebekka Sif Pétursdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25575
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25575

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rebekka Sif Pétursdóttir 1982-. Lífsstílsbreytingar handbók : verkfæri í átt að bættum lífsstíl við að sleppa takinu á umfram þyngdinni. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25575