Back to results

Reykjavík University

Hámarkssúrefnisupptaka úrvalsdeildarliðs Víkings í knattspyrnu

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn verður mæld hámarkssúrefnisupptaka hjá knattspyrnuliði í úrvalsdeild karla á Íslandi. Liðið er Víkingur. Hópurinn samanstendur af 20 leikmönnum á aldrinum 16-34 ára. Meðalaldur leikmanna er 22 ár. Mælingar voru gerðar 2. og 7. mars 2016. Þegar mælingar voru gerðar voru leikmenn í miðju undirbúningsferli fyrir keppnistímabilið. Mælingarnar voru gerðar í samstarfi við yfirþjálfara félagsins í þeim tilgangi að sjá hver staðan væri hjá þeim fyrir komandi undirbúning fyrir sumarið. Æfingaáætlun var útbúin með tilliti til þeirra niðurstaðna sem komu út úr mælingunum. Niðurstöður úr mælingum á knattspyrnumönnunum verða bornar saman við aðrar þekktar mælingar sem hafa verið framkvæmdar á svipuðum leikmannahópun annarsstaðar í heiminum í þeim tilgangi að sjá hvar þátttakendur þessarar rannsóknar standa miðað við fyrri rannsóknir. Meðaltal af hámarkssúrefnisupptöku leikamanna sem mældir voru á rannsóknarstofu Íþróttafræðinnar í Háskólanum í Reykjavík var 56,77 VO2 ((ml/kg/mín)). Sá hæsti mældist 66 VO2 ((ml/kg/mín)) og sá lægsti 47,8 ((ml/kg/mín)), en 56,77 VO2 ((ml/kg/mín)) telst ekki nógu gott fyrir úrvalsdeildarlið í knattspyrnu. Hafa þarf í huga að fjórir leikmenn höfðu verið að stíga upp úr flensu, sem kann að hafa haft áhrif á niðurstöðurnar

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Davíð Jónatansson 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25548
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25548

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Davíð Jónatansson 1988-. Hámarkssúrefnisupptaka úrvalsdeildarliðs Víkings í knattspyrnu. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25548