Reykjavík University
Þjálfarar og íþróttakennarar framtíðarinnar : eru fitufordómar á meðal íþróttafræðinema og íþróttafræðinga á Íslandi?
Abstract
dc:description.abstractBakgrunnur: Rannsóknir sýna að í vestrænum samfélögum eru fitufordómar til staðar á meðal heilbrigðisstarfsfólks, einstaklinga sem starfa við þjálfun og á meðal íþróttafræðinema. Markmið þessarar rannsóknar var því að kanna hvort fitufordómar séu til staðar á meðal íþróttafræðinga og íþróttafræðinema á Íslandi og bera saman við viðmiðunarhóp sem samanstendur af sálfræðingum og sálfræðinemum. Aðferð: Samtals tóku 497 þátt í rannsókninni, 131 (26,4%) íþróttafræðinemi, 116 (23,3%) sálfræðinemar, 60 (12,1%) íþróttafræðingar og 190 (38,2%) sálfræðingar. Af þátttakendum voru 341 kona (68,8%) og 155 karlar (31,2%). Lagðir voru fyrir þrír sjálfsmatskvarðar til að meta viðhorf til feitra (AFA), viðhorf til útlits, hreysti og heilsu (MBSRQ) og félagslega yfirráðahyggju (SDO). Niðurstöður: Allir hópar sýndu neikvæð viðhorf í garð feitra en íþróttafræði- og sálfræðinemar sýndu neikvæðari viðhorf í garð feitra á öllum undirkvörðum en sálfræðingar (p<0,05). Íþróttafræðingar telja frekar að líkamsþyngd stjórnist af viljastyrk en sálfræðingar (p<0,05). Ekki var munur á fitufordómum hjá íþróttafræðinemum á fyrsta og þriðja ári. Íþróttafræðinemar voru með meiri félagslega yfirráðahyggju en aðrir hópar (p<0,05). Yngsti aldurshópurinn er haldinn meiri fitufordómum en þeir sem eldri eru (p<0,05). Karlar hafa meiri andúð á feitum og telja frekar að líkamsþyngd stjórnist af viljastyrk (p<0,05). Konur eru hins vegar hræddari við að fitna (p<0,05). Munur á hópunum er ekki tilkominn vegna aldurs- né kynjamunar í úrtaki. Ályktun: Íþróttafræðingar og íþróttafræðinemar sýna fitufordóma. Út frá lýðheilsufræðilegum sjónarmiðum skiptir máli að reyna að koma í veg fyrir mismunun og útrýma fitufordómum á meðal íþróttafræðinga. Sérstaklega vegna tengsla íþróttafræðinga við forvarnarstarf barna í grunnskólum. Einnig þar sem íþróttafræðingar sinna þjálfun á feitum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna Berglind Jónsdóttir 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25544
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25544