Abstract
dc:description.abstractTilgangur þessa verkefnis er að kanna hvaða áhrif árangursstjórnunaraðferðir hafa á veltu íslenskra fyrirtækja. Einnig er skoðað hvaða áhrif tenging árangursstjórnunar við stefnu fyrirtækja hefur á veltu þeirra. Leitast er eftir því að kynna fyrir lesendum hvað árangursstjórnun er og hvaða áhrif hún hefur á fyrirtæki. Ýmsar árangursstjórnunaraðferðir eru taldar upp og þeim lýst á skýran og myndrænan hátt. Fjárhagslegum og ófjárhagslegum mælikvörðum eru gerð skil og greint frá þeim kostum og ókostum sem fylgja notkun þeirra. Niðurstöður leiddu í ljós að af þeim 6 árangursstjórnunaraðferðum sem kannaðar voru hafði einungis stefnumiðað árangursmat (e. Balanced scorecard) marktæk áhrif á veltu fyrirtækja á Íslandi. Einnig sýndu niðurstöður að ef fyrirtæki tengja árangursstjórnun sína við stefnu fyrirtækisins leiðir það til hærri veltu. Engin marktæk tengsl fundust á milli notkunar á árangursmælikvörðum og veltu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hólmfríður Eysteinsdóttir 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25408
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25408