Back to results

Reykjavík University

Áhrif afdráttarskatta á íslenskan lögaðila í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi

Abstract

dc:description.abstract

Ísland telst fámennt land og þar af leiðir er viðskiptamarkaður takmarkaður og hefur það hamlandi áhrif á þróun og vöxt íslenskra fyrirtækja ef þau geta ekki sótt á hinn alþjóðlega markað. Gera þarf íslenskum fyrirtækjum kleift að starfa í alþjóðlegu umhverfi á samkeppnisgrundvelli. Stjórnvöld sinna lykilhlutverki í því sambandi hvað varðar gerð viðskiptasamninga við önnur ríki og leggja grunn að því að fyrirtæki á Íslandi geti sótt og starfað í alþjóðlegu umhverfi. Tekjuskattur spilar þar stórt hlutverk þegar kemur að samkeppnishæfni ásamt því hvar og hvenær skatturinn er innheimtur. Afdráttarskattar sem innheimtir eru í þriðja ríki eru tekjuskattar en líkjast fremur staðgreiðslusköttum en hefðbundnum tekjuskatti þegar horft er til þess hvenær þeir eru innheimtir. Lykilatriði í því að gera íslenskum lögaðilum kleift að starfa í alþjóðlegu umhverfi og keppa þar á jafningjagrundvelli eru því tvísköttunarsamningar við erlend ríki þar sem lagður er grundvöllur að aukinni samvinnu í skattamálum, koma í veg fyrir tvísköttun tekna og skertu sjóðstreymi til fyrirtækjanna. Mun færri tvísköttunarsamningar eru gildandi á Íslandi en í þeim ríkjum sem við berum okkur gjarnan saman við.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Harpa Eggertsdóttir 1970-
  • Ingi Þór Tómasson 1972-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25402
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25402

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Harpa Eggertsdóttir 1970-; Ingi Þór Tómasson 1972-. Áhrif afdráttarskatta á íslenskan lögaðila í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25402