Back to results

Reykjavík University

Í ólgusjó deilna og ólíkra sjónarmiða: mismunandi viðhorf til gjaldtöku við náttúruperlur á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Aukin umsvif ferðaþjónustu á Íslandi síðustu árin, hafa átt stóran þátt í endurreisn efnahagskerfisins hér á landi eftir hrun. Ferðaþjónustan hefur nýlega tekið fram úr sjávarútvegi sem stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar. Þrátt fyrir aukin umsvif,tekjumöguleika og efnahagslegt gildi greinnarinnar, hafa stjórnvöld ekki sýnt greininni nægilegan áhuga að mati margra og eru margar náttúruperlur komnar að þolmörkum vegna ágangs ferðamanna og varanleg ummerki á ferðamannastöðum farin að sjást. Í þessu verkefni er fjallað um þau hagrænu vandamál sem fylgja sameiginlegum gæðum, en það er flokkur gæða sem náttúruperlur tilheyra. Greint verður frá því hvernig hagkvæmast er fyrir samfélagið að ráðstafa þessum auðlindum til þess að auka sjálfbærni þeirra og hámarka þessa tekjulind Íslendinga. Gjaldtaka, skattlagning og skilgreining eignarréttar eru dæmi um lausnir á vandamálum sem fylgja sameiginlegum gæðum. Jafnframt er gerð grein fyrir því á hvaða hátt notendagjald gæti hámarkað samfélagslegan ábata. Til stuðnings verkefninu var gerð könnun þar sem viðhorf Íslendinga til mögulegrar gjaldtöku á ferðamannastöðum var könnuð. Verkefnið leiddi í ljós að einkarekstur er arðbærari en rekstur hins opinbera og því hagkvæmara að rekstur í kringum náttúruperlur sé falin einkaaðilum. Niðurstöður sýna að meirihluti Íslendinga er sammála því að gjaldtaka sé þörf og að sú gjaldtökuleið sem eigi að fara séu komu- og brottfaragjöld.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eva Rakel Jónsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25383
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25383

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eva Rakel Jónsdóttir 1992-. Í ólgusjó deilna og ólíkra sjónarmiða: mismunandi viðhorf til gjaldtöku við náttúruperlur á Íslandi. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25383