Back to results

Reykjavík University

Sparnaður á Íslandi: orsakasamband við hagvöxt og áhrif hagvaxtar á sparnað

Abstract

dc:description.abstract

Rannsókn þessi fjallar um sparnað á Íslandi og tengsl hans við hagvöxt landsins. Til þess að rannsaka tengsl sparnaðar og hagvaxtar á Íslandi voru gögn þjóðhagslegs sparnaðar frá 1980-2014 rannsökuð með orsakatengslaprófi Grangers (Granger causality test). Til viðbótar var gerð tilraun á því hvaða áhrif hagvöxtur hefur á sparnað einstaklinga. Þátttakendum tilraunar var annað hvort komið inn í aðstæður mikils hagvaxtar eða lítils eða neikvæðs hagvaxtar með því formi að þau lásu formála sem lýsti öðrum hvorum þessara aðstæðna. Í kjölfarið svöruðu þátttakendur svo spurningalista með tilliti til formálans. Þessi tilraun var gerð á tveimur hópum, annars vegar starfsmönnum í viðskiptaumsjón hjá Arion banka og hins vegar viðskiptafræði-nemum við Háskólann í Reykjavík (HR). Niðurstöður orsakatengslaprófs Grangers leiddu meðal annars í ljós einátta samband milli hagvaxtar og sparnaðar, þar sem orsökin runnu frá hagvexti yfir í sparnað, en í slíkum tilvikum er sagt að hagvöxtur Granger-valdi sparnaði. Niðurstöður tilraunar styðja svo við þessa rannsókn að því leyti að mismunandi hagvöxtur hafði áhrif á svör þátttakenda, en þó með ólíkum hætti. Viðskiptafræðinemar við HR myndu spara meira við lítinn eða neikvæðan hagvöxt heldur en mikinn hagvöxt. Hins vegar myndu starfsmenn í viðskiptaumsjón Arion banka spara meira við mikinn hagvöxt heldur en við lítinn eða neikvæðan hagvöxt. Niðurstöður rannsóknarinnar eru því ólíkar fyrir rannsakaða hópa. Þrátt fyrir þetta misræmi milli hópa þá sýna niðurstöður rannsóknar í heild sinni, að stig hagvaxtar breytir því hversu mikið Íslendingar spara bæði hvað varðar fjárhæð sparnaðar og hlutfall sparnaðar af tekjum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Andri Þór Skúlason 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25344
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25344

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Andri Þór Skúlason 1993-. Sparnaður á Íslandi: orsakasamband við hagvöxt og áhrif hagvaxtar á sparnað. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25344