Back to results

Reykjavík University

Hver er ímynd HB Granda í augum íslensks almennings?

Abstract

dc:description.abstract

Sjávarútvegur er ein af þremur undirstöðu atvinnugreinum Íslands. Innan greinarinnar starfa mörg af stærri fyrirtækjum landsins, sem sérhæfa sig í veiðum og vinnslu sjávarafurða. Sjávarútvegur hefur verið umdeildur um marga ára skeið, sem er hægt að rekja til laga um stjórn fiskveiða. HB Grandi er stærsti handhafi veiðiheimilda á Íslandi og hjá fyrirtækinu starfa um 950 manns til sjós og lands. Fyrirtækið leggur áherslu á virðingu fyrir umhverfi og lífríki sjávar ásamt því að starfsemi félagsins endurspegli samfélagslega ábyrgð í rekstri. Í verkefninu er lögð áhersla á að gefa greinargóða mynd af starfsemi og starfsumhverfi HB Granda með það fyrir augum að draga fram þá áhrifaþætti sem geta ráðið ímynd almennings á fyrirtækinu. Framkvæmd var rannsókn sem unnin var úr gögnum frá stjórnendum HB Granda og almenningi. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig ímynd HB Granda er í augum íslensks almennings. Stuðst var við fræðileg hugtök í markaðsfræði og viðskiptasiðfræði. Höfundar settu fram þrjár tilgátur: H1: Fólk með háskólamenntun er jákvæðara í garð HB Granda en fólk án háskólamenntunar. H2: Þeir einstaklingar sem hafa keypt hlutabréf í HB Granda eru jákvæðari í garð HB Granda heldur en fólk sem hefur ekki keypt hlutabréf í fyrirtækinu. H3: Það er fylgni á milli staðhæfingarinnar ,,Ég ber mikla virðingu fyrir HB Granda.” og spurningarinnar ,,Hversu neikvæð/ur eða jákvæð/ur ertu gagnvart HB Granda?”.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Hafþór Eide Hafþórsson 1989-
  • Sæunn Sunna Samúelsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22639
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22639

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hafþór Eide Hafþórsson 1989-; Sæunn Sunna Samúelsdóttir 1991-. Hver er ímynd HB Granda í augum íslensks almennings?. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22639