Back to results

Reykjavík University

Áhrifaþættir og kaupáform í netverslun

Abstract

dc:description.abstract

Netverslun á Íslandi hefur verið heldur minni í samanburði við nágrannalöndin en hefur þó vaxið hratt síðustu fjögur ár. Markmið þessarar ritgerðar var að skoða hvernig netverslun á fatnaði og skóm væri háttað meðal þátttakenda í þessari rannsókn. Hvað það var sem hvatti til þess að fólk keypti á netinu, hvaða eiginleikar vefsíðu og þjónustu mátu þátttakendur mest og hvað hafði áhrif á kaupákvörðun þeirra. Spurningakönnunin var birt rafrænt á samfélagsmiðlinum Facebook og voru þátttakendur 281, þar af 83% konur og 17% karlar. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að flestir sögðust panta frá erlendum netverslunum. Ákveðnir þættir í hönnun vefsíðu eins og upplýsingar um eiginleika vöru, fyrirkomulag pantana, afhendingartíma og gott leiðsagnarkerfi voru þeir þættir sem þátttakendur mátu hvað mikilvægasta. Þá var fólk almennt jákvætt gagnvart netklúbbum og tölvupóstum frá fyrirtækjum sem það var í viðskiptum við. Einnig kom í ljós að það skipti þátttakendur miklu máli að pantanir á netinu væru með rekjanleika og að ef þyrfti að skila vöru þá væri hægt að fá hana endurgreidda. Þá var mikilvægt að síðan væri vottuð með öryggisauðkenni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Anna Bára Teitsdóttir 1974-
  • Guðlaug Helga Kristjánsdóttir 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22629
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22629

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Bára Teitsdóttir 1974-; Guðlaug Helga Kristjánsdóttir 1974-. Áhrifaþættir og kaupáform í netverslun. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22629