Back to results

Reykjavík University

Skattlagning fjármálafyrirtækja

Abstract

dc:description.abstract

Meginmarkmið ritgerðar þessarar er að fjalla um þá öru þróun skattlagningar á fjármálafyrirtæki í kjölfar hins meinta efnahagshruns árið 2008. Á síðustu sjö árum hafa verið settir nýir skattar sem fjármálafyrirtækjum er sérstaklega gert að greiða, auk þess hefur verið hækkun á þjónustugjöldum á þessi fyrirtæki. Höfundur spyr sig því er eðlilegt að skattleggja þessa atvinnugrein jafn íþyngjandi og gert er í dag? Efnisinntök ritgerðarinnar eru með þeim að hætti að fyrst verður gert grein fyrir hugtakinu skattur og þjónustugjöldum en höfundi þótti mikilvægt að það yrði gert samhengisins vegna. Þá er söguleg þróun á íslenskum fjármálamarkað og umfjöllun um þá umdeildu og sögulegu atburði sem gerðust á Íslandi 2008 þegar þrír stærstu viðskiptabankarnir voru í neyð yfirteknir af íslenskum stjórnvöldum. Næstu kaflar ritgerðarinnar og meginumfang hennar snýr að því að tilgreina þær reglur sem gilda um skattlagningu og gjaldtöku fjármálafyrirtækja, hvaða þjónustugjöld og skattar það eru sem hvíla á fjármálafyrirtækjum. Helsta nýja skattlagningin sem farið verður í er sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki og fjársýsluskattur. Þá eru fjölmörg álitaefni sem tengjast þessum gjöldum og skattlagningu, til að mynda eru ýmis fjármálafyrirtæki á þessum markaði sem eru undanþegin gjöldum og sköttum sem er athyglisvert út frá jafnræðissjónarmiði á svo smáum markaði. Þá hefur þessi aukning á skattlagningu á fjármálafyrirtæki hamlað samkeppnishæfni íslenskra fjármálafyrirtækja. Í síðari hluta ritgerðar verður fjallað um stöðuna eins og hún er árið 2015 og sérstaklega skattlagningu hina föllnu banka og skuldir sem andlag skattlagningar. Að lokum verður í ritgerðinni farið yfir sérstöðu þessarar atvinnugreinar gagnvart öðrum fyrirtækjum og hvort fyrir hendi séu einhverjar ívilnandi heimildir fyrir fjármálafyrirtæki sem koma til móts við þá auknu skattlagningu sem atvinnugreinin sætir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hildur Karen Haraldsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22311
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22311

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hildur Karen Haraldsdóttir 1990-. Skattlagning fjármálafyrirtækja. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22311