Abstract
dc:description.abstractMarkmið ritgerðarinnar er að leitast við að varpa ljósi á refsiábyrgð einstaklinga samkvæmt samkeppnislögum og þá hvernig kröfur bæði refsi- og sakamálaréttar falla að hinum ýmsu reglum samkeppnisréttar. Í öðrum kafla er farið yfir þær reglur og þau ákvæði sem eiga við þegar fengist er við refsiábyrgð einstaklinga í samkeppnismálum. Er þar helst að nefna 10. og 41. gr. a. samkeppnislaga. Í þriðja kafla er síðan farið yfir af hverju og að hvaða leyti refsiábyrgðar einstaklinga er þörf í samkeppnisrétti. Þá er í kafla fjögur farið yfir reglur sakamálaréttar og þær bornar saman við hinar ýmsu reglur samkeppnisréttar m.a. sönnunarreglur. Í kafla fimm er svo farið yfir flokkun samkeppnislagabrota, þ.e. eftir fullframningarstigi og eftir markmiði og afleiðingu. Næst, í kafla sex, er farið yfir skýrleika refsiheimilda og gert grein fyrir þeim kröfum sem gerðar eru til refsiheimilda og þær bornar saman við samkeppnislögin eins og þau eru í dag. Höfundur fór svo yfir upplýsingaskipti sem samkeppnislagabrot og fór fram athugun á því hvernig tekið yrði á upplýsingaskiptum á sviði sakamála. Að endingu var farið yfir dóm héraðsdóms Reykjaness í máli S-218/2014 ákæruvaldið gegn starfsmönnum Húsasmiðjunnar, BYKO og Úlfsins. Komist var að hinum ýmsu niðurstöðum í ritgerðinni en þar er helst að nefna niðurstöður um saknæmisstig samkeppnislaganna, skýrleika þeirra, sönnun og flokkun samkeppnislagabrota. Höfundur rökstyður það að saknæmisstig laganna nái aðeins til ásetnings eða vítaverðs gáleysis. Þá var komist að því að öfugri sönnunarbyrði yrði ekki beitt í refsimáli gegn einstaklingi. Höfundur rökstyður svo hvernig flokkun samkeppnislagabrota er háttað eftir fullframningarstigi og að skýrleika laganna sem refsiheimild sé ábótavant.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Magnús Ingvar Magnússon 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/22307
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/22307