Back to results

Reykjavík University

Hugræn færni landsliðsmanna í knattspyrnu: Samanburður við afreksmenn í einstaklingsíþróttum og A-landslið kvenna í knattspyrnu

Abstract

dc:description.abstract

Síðustu ár hefur íþróttasálfræði vaxið sem fræðigrein. Sífellt meiri áhersla er lögð á rannsóknir á hugrænni færni íþróttamanna. Í þessari rannsókn var hugræn færni skoðuð hjá leikmönnum í A-landsliði karla og U-19 ára landsliði karla í knattspyrnu og hóparnir bornir saman. Einnig voru hóparnir tveir bornir saman við þrjá viðmiðunarhópa úr fyrri rannsóknum; A-landslið kvenna í knattspyrnu, afrekshóp ÍSÍ og hóp ungra og efnilegra íþróttamanna hjá ÍSÍ. Alls voru þátttakendur í rannsókninni nú 26 talsins á aldrinum 18 – 32 ára. Spurningakönnun var send rafrænt á þátttakendur í gegnum tengilið hjá Knattspyrnusambandi Íslands. OMSAT kvarðinn var notaður til þess að mæla hugræna færni leikmanna landsliðanna. Höfundar lögðu einnig fram spurningar sem skoða viðhorf landsliðsmanna til þátta sem tengjast sálfræði og knattspyrnu. Ætla mætti að leikmenn úr A-landsliði karla hefðu betri hugræna færni en leikmenn U-19 ára landsliðsins ef marka má niðurstöður fyrri rannsóknum, þar sem fram kemur að hugræn færni helst í hendur við árangur og frammistöðu íþróttamanna. Niðurstöður nú sýndu ekki fram á mun milli hugrænnar færni A-landsliðsmanna og leikmanna U-19 ára landsliðs karla í knattspyrnu. Þegar A- og U-19 ára landslið karla voru borin saman við A-landslið kvenna kom fram munur á hugrænni færni þar sem karla landsliðin voru með betri hugræna færni. Ekki fannst munur á milli A- og U-19 ára landsliðs karla í samanburði við afrekshóp ÍSÍ og unga og efnilega íþróttamenn hjá ÍSÍ.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Pétur Már Harðarson 1989-
  • Rúna Kristín Stefánsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19350
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19350

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pétur Már Harðarson 1989-; Rúna Kristín Stefánsdóttir 1988-. Hugræn færni landsliðsmanna í knattspyrnu: Samanburður við afreksmenn í einstaklingsíþróttum og A-landslið kvenna í knattspyrnu. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19350