Back to results

Reykjavík University

Réttindi og skyldur foreldra gagnvart barni

Abstract

dc:description.abstract

Markmið ritgerðarinnar er að svara grundvallarspurningum er varða réttindi og skyldur foreldra samkvæmt ákvæðum barnalaga nr. 76/2003, með síðari breytingum. Bæði verður farið í réttindi og skyldur þeirra foreldra sem fara með forsjá og þeirra foreldra sem eru forsjárlaus og gerður greinarmunur á stöðu foreldra eftir því. Þá verður leitast við að svara spurningunni: Hvers vegna skiptir forsjá máli? Ritgerðin byrjar á inngangi þar sem nánar er gerð grein fyrir þeim álitaefnum sem leitast verður við að svara í ritgerðinni. Ég nálgaðist verkefnið að mestu leiti í gegnum gildandi barnalöggjöf og hugsaði ritgerðina í skrefum út frá löggjöfinni á þann hátt að í öðrum kafla er hugtakið forsjá skilgreint ásamt því að fjallað er almennt um forsjá, sögulega þróun forsjár og til hvaða atriða skal líta í þeim tilfellum þegar dæma þarf um forsjá. Þá verður einnig farið stuttlega yfir hvað felst í sameiginlegri forsjá auk umfjöllunar um réttindi barnsins. Í þriðja og fjórða kafla er gerð grein fyrir réttindum og skyldum hvors foreldris um sig, það er að segja forsjárforeldris og forsjárlauss foreldris. Í kjölfarið á þeirri umfjöllun er efni hennar dregið saman í kafla fimm og sýnt fram á þann mun sem felst í því að hafa forsjá og að hafa ekki forsjá yfir barni. Í sjötta og síðasta kaflanum verður svo farið yfir helstu niðurstöður ritgerðarinnar. Niðurstaða ritgerðarinnar er sú að það getur skipt gríðarlega miklu máli fyrir foreldri að hafa forsjá yfir barni sínu. Ber í því sambandi helst að nefna sá réttur forsjárforeldris til að ráða persónulegum högum barns, en fari foreldri eitt með forsjá yfir barni tekur það allar meiri og minni háttar ákvarðarnir er varða barnið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingibjörg Garðarsdóttir Briem 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19219
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19219

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingibjörg Garðarsdóttir Briem 1989-. Réttindi og skyldur foreldra gagnvart barni. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19219