Back to results

Reykjavík University

Innleiðing alþjóðlegs umhverfisréttar í íslenskan landsrétt

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerð þessari er leitast við að rannsaka annarsvegar hvernig innleiðingu alþjóðlegs umhverfisréttar er háttað í íslenskum rétti og hinsvegar er rannsökuð dómaframkvæmd íslenskra dómstóla þar sem vísað er til ólögfestra þjóðréttarsamninga sem íslenska ríkið hefur fullgilt að þjóðarétti. Við rannsóknina á innleiðingu alþjóðlegs umhverfisréttar er sérstaklega horft til hinna nýju náttúruverndarlaga sem tóku gildi í apríl á þessu ári. Til að leiða í ljós hvernig dómaframkvæmdinni hefur verið háttað eru skoðaðir helstu dómar sem fallið hafa á síðustu árum í Hæstarétti þó ekki séu margir dómar til samanburðar. Niðurstöður ritgerðarinnar leiða í ljós að sú mikla vinna sem lögð var í hin nýju náttúruverndarlög hefur skilað sér í því að í dag samræmist íslenskur umhverfisréttur mun betur reglum alþjóðlegs umhverfisréttar. Þó má sjá frammá nokkrar breytingar og þróun í alþjóðlegum uhverfisrétti og svo sú vinna sem lögð hefur verið í að samræma íslenska umhverfisrétt við alþjóðlegan umhverfisrétt glatist ekki er nauðsynlegt að fylgjast vel með. Niðurstöður á rannsókn dómaframkvæmdar íslenskra dómstóla hvað varðar vísanir í ólögfesta þjóðréttarsamninga sýna fram á að leiða megi að því líkur að dómstólar séu í auknum mæli að horfa til alþjóðlegra umhverfisréttarskuldbindinga. Jafnframt benda niðurstöður dómarannsóknarinnar til þess að dómstólar séu tilbúnir að teygja sig nokkuð langt í því skyni að skýra íslenskan landsrétt til samræmis við þjóðarétt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hanna Lísa Hafsteinsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19217
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19217

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hanna Lísa Hafsteinsdóttir 1988-. Innleiðing alþjóðlegs umhverfisréttar í íslenskan landsrétt. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19217