Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerð þessari er leitast við að rannsaka annarsvegar hvernig innleiðingu alþjóðlegs umhverfisréttar er háttað í íslenskum rétti og hinsvegar er rannsökuð dómaframkvæmd íslenskra dómstóla þar sem vísað er til ólögfestra þjóðréttarsamninga sem íslenska ríkið hefur fullgilt að þjóðarétti. Við rannsóknina á innleiðingu alþjóðlegs umhverfisréttar er sérstaklega horft til hinna nýju náttúruverndarlaga sem tóku gildi í apríl á þessu ári. Til að leiða í ljós hvernig dómaframkvæmdinni hefur verið háttað eru skoðaðir helstu dómar sem fallið hafa á síðustu árum í Hæstarétti þó ekki séu margir dómar til samanburðar. Niðurstöður ritgerðarinnar leiða í ljós að sú mikla vinna sem lögð var í hin nýju náttúruverndarlög hefur skilað sér í því að í dag samræmist íslenskur umhverfisréttur mun betur reglum alþjóðlegs umhverfisréttar. Þó má sjá frammá nokkrar breytingar og þróun í alþjóðlegum uhverfisrétti og svo sú vinna sem lögð hefur verið í að samræma íslenska umhverfisrétt við alþjóðlegan umhverfisrétt glatist ekki er nauðsynlegt að fylgjast vel með. Niðurstöður á rannsókn dómaframkvæmdar íslenskra dómstóla hvað varðar vísanir í ólögfesta þjóðréttarsamninga sýna fram á að leiða megi að því líkur að dómstólar séu í auknum mæli að horfa til alþjóðlegra umhverfisréttarskuldbindinga. Jafnframt benda niðurstöður dómarannsóknarinnar til þess að dómstólar séu tilbúnir að teygja sig nokkuð langt í því skyni að skýra íslenskan landsrétt til samræmis við þjóðarétt.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hanna Lísa Hafsteinsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/19217
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/19217