Back to results

Reykjavík University

Fæðingardagsáhrif í knattspyrnu

Abstract

dc:description.abstract

Knattspyrna er vinsælasta íþrótt bæði í heimi og á Íslandi. Um 14.000 börn og unglingar stunda knattspyrnu á Íslandi. Samkvæmt fyrri rannsóknum þá eru þeir sem eru fæddir fyrr á árinu líklegri til að standa sig betur bæði í íþróttum og á öðrum sviðum, þetta kallast fæðingardagsáhrif. Gerð var megindleg rannsókn þar sem leikmönnum var skipt niður í styrkleikaflokka af þjálfurum þeirra, foreldrar svöruðu hvenær leikmenn byrjuðu að æfa knattspyrnu og fóru leikmenn í þrjú próf, 10 m hlaup, KSÍ knattraksbraut og halda bolta á lofti. Þátttakendur voru 589 á aldrinum 9-14 ára. Markmið rannsóknarinnar var að athuga hvort að þeir sem eru fæddir snemma á árinu séu líklegri til að vera í betri getuflokki en þeir sem eru fæddir seint á árinu og athuga hvort þeir sem byrja fyrr að æfa knattspyrnu séu í hærri getuflokki. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að meðalaldur hvenær leikmenn byrja að æfa knattspyrnu er lægstur hjá A-leikmönnum og fyrsti ársfjórðungurinn er sá fjórðungur sem flestir A-leikmenn eru fæddir. Niðurstöður í 4. flokki voru þó þannig að það voru ekki fæðingardagsáhrif í getuskiptingu leikmanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Aðalbjörn Hannesson 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16253
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16253

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aðalbjörn Hannesson 1989-. Fæðingardagsáhrif í knattspyrnu. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16253