Reykjavík University
Er munur á þyngd refsinga fyrir nauðgun eftir því hvort verknaður fellur undir 1. eða 2. mgr. 194. gr. hgl? Rannsókn á dómum Hæstaréttar 2007-2012
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerð þessari er þróun refsinga í nauðgunarmálum, frá því að lög nr. 61/2007 um breyting á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 tóku gildi 4. apríl 2007, rannsökuð. Sérstaklega er skoðað hvort að munur sé á þyngd refsinga fyrir nauðgun eftir því hvort verknaður fellur undir 1. eða 2. mgr. 194. gr. hgl. Athugaðir eru allir dómar Hæstaréttar, frá byrjun árs 2007 til loka árs 2012, þar sem sakfellt er fyrir 1. og 2. mgr. 194. gr. hgl. Með lögum nr. 61/2007 voru lögfest ýmis nýmæli sem hafa áhrif á ákvörðun refsingar fyrir nauðgun. Með lögunum var hugtakið nauðgun rýmkað mjög frá því sem það áður var. Nú teljast önnur kynferðisnauðung (áður 195. gr. hgl.) og misneyting (áður 196. gr. hgl. ) nauðgun og varða þyngri refsingu. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 61/2007 kom fram skýr vilji löggjafans um að lögð yrði minni áhersla á verknaðaraðferð þá sem beitt er við brotið og horft frekar á brotið sjálft gegn kynfrelsi einstaklingsins. Í ritgerðinni er því skoðað hvort að vilji löggjafans endurspeglist í dómum Hæstaréttar frá því að lögin tóku gildi og hvort að lagabreytingin hafi haft áhrif á þyngd refsinga fyrir nauðgun. Fram kemur að refsingar fyrir nauðgun hafi almennt verið að þyngjast. Sú þróun hafi hafist fyrir gildistöku laganna og haldið áfram síðustu sex ár. Enn megi þó greina nokkurn mun á þyngd refsinga eftir verknaðaraðferðum og þar vegur ofbeldi þyngst. Því virðist sem vilji löggjafans endurspeglist ekki að fullu í dómum Hæstaréttar frá því að lögin tóku gildi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Nanna Dröfn Björnsdóttir 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15963
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15963