Back to results

Reykjavík University

Er munur á þyngd refsinga fyrir nauðgun eftir því hvort verknaður fellur undir 1. eða 2. mgr. 194. gr. hgl? Rannsókn á dómum Hæstaréttar 2007-2012

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerð þessari er þróun refsinga í nauðgunarmálum, frá því að lög nr. 61/2007 um breyting á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 tóku gildi 4. apríl 2007, rannsökuð. Sérstaklega er skoðað hvort að munur sé á þyngd refsinga fyrir nauðgun eftir því hvort verknaður fellur undir 1. eða 2. mgr. 194. gr. hgl. Athugaðir eru allir dómar Hæstaréttar, frá byrjun árs 2007 til loka árs 2012, þar sem sakfellt er fyrir 1. og 2. mgr. 194. gr. hgl. Með lögum nr. 61/2007 voru lögfest ýmis nýmæli sem hafa áhrif á ákvörðun refsingar fyrir nauðgun. Með lögunum var hugtakið nauðgun rýmkað mjög frá því sem það áður var. Nú teljast önnur kynferðisnauðung (áður 195. gr. hgl.) og misneyting (áður 196. gr. hgl. ) nauðgun og varða þyngri refsingu. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 61/2007 kom fram skýr vilji löggjafans um að lögð yrði minni áhersla á verknaðaraðferð þá sem beitt er við brotið og horft frekar á brotið sjálft gegn kynfrelsi einstaklingsins. Í ritgerðinni er því skoðað hvort að vilji löggjafans endurspeglist í dómum Hæstaréttar frá því að lögin tóku gildi og hvort að lagabreytingin hafi haft áhrif á þyngd refsinga fyrir nauðgun. Fram kemur að refsingar fyrir nauðgun hafi almennt verið að þyngjast. Sú þróun hafi hafist fyrir gildistöku laganna og haldið áfram síðustu sex ár. Enn megi þó greina nokkurn mun á þyngd refsinga eftir verknaðaraðferðum og þar vegur ofbeldi þyngst. Því virðist sem vilji löggjafans endurspeglist ekki að fullu í dómum Hæstaréttar frá því að lögin tóku gildi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Nanna Dröfn Björnsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15963
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15963

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Nanna Dröfn Björnsdóttir 1984-. Er munur á þyngd refsinga fyrir nauðgun eftir því hvort verknaður fellur undir 1. eða 2. mgr. 194. gr. hgl? Rannsókn á dómum Hæstaréttar 2007-2012. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15963