Reykjavík University
Varnaraðild hins opinbera: Um lægra sett og æðra sett stjórnvöld
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin fjallar um varnaraðild hins opinbera með sérstakri áherslu á þau tilvik þar sem mál hafa verið til meðferðar á tveimur eða fleiri stjórnsýslustigum. Í ritgerðinni er leitast við að svara tveimur rannsóknarspurningum. Annars vegar hvort dómaframkvæmd Hæstaréttar frá árinu 1997, sem markaði varnaraðild hins opinbera ákveðinn farveg, hafi verið heppileg og hvort henni hafi verið fylgt. Hins vegar hvort dómaframkvæmdin frá árinu 1997 kunni að vera misskilin. Niðurstöður ritgerðarinnar byggjast á sjálfstæðri rannsókn höfundar á dómum Hæstaréttar frá 1. janúar 1997 til 8. maí 2013 með hliðsjón af innlendum og erlendum fræðiritum um viðfangsefnið. Tilgangur ritgerðarinnar var sá að kanna grundvöll dómaframkvæmdarinnar frá árinu 1997, þróun hennar og hvort hún hefði reynst vel. Mikill málafjöldi beinist að hinu opinbera fyrir dómstólum á ári hverju. Af þeim sökum hljóta veigamikil rök að standa til þess að aðild hins opinbera sé í nokkuð föstum skorðum en ella kann aðgengi almennra borgara að dómstólum að takmarkast vegna frávísana mála. Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að á ákveðnum málefnasviðum sé aðild hins opinbera nokkuð fastmótuð sem bendir til þess að dómaframkvæmdin frá 1997 hafi þjónað hlutverki sínu. Hins vegar ríkir réttaróvissa á öðrum sviðum sem enn sér ekki fyrir endann á. Við fyrstu sýn virðist vera mikið ósamræmi í dómaframkvæmd Hæstaréttar á þessu sviði. Þegar dómaframkvæmd á hinum ýmsu sviðum stjórnsýslumála er skoðuð nánar virðist sem óútskýranleg frávik frá fyrrnefndri dómaframkvæmd séu tiltölulega fá. Niðurstaða rannsóknarinnar er til þess fallin að varpa ljósi á þá meinbugi sem virðast vera á dómaframkvæmd Hæstaréttar á þessu sviði ásamt því að vera yfirgripsmikið dómasafn yfir dóma þar sem aðild hins opinbera er gerð að umfjöllunarefni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hlynur Ólafsson 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15953
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15953