Back to results

Reykjavík University

Markaðsmisnotkun - Refsiverð háttsemi skv. 117. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 107/2008

Abstract

dc:description.abstract

Lítið hefur reynt á markaðsmisnotkunarákvæði 117. gr. VVL í íslenskum rétti. Fyrir bankahrunið 2008 fór ekkert slíkt mál fyrir Hæstarétt og aðeins eitt fyrir héraðsdóm. Árið 2010 reyndi fyrst á ákvæðið fyrir Hæstarétti þar sem ákærðu voru sakfelldir fyrir brot gegn a. lið 1. tölul. 1. mgr. 117. gr. VVL. Viðamiklar rannsóknir hafa átt sér stað síðan 2008 á því hvort markaðsmisnotkun hafi átt sér stað í aðdraganda bankahrunsins. Þó að ólíklegt sé að öll þau mál sem til rannsóknar eru muni fara fyrir dómstóla má vænta þess að reyna muni á túlkun á ákvæði 117. gr. VVL um markaðsmisnotkun í þó nokkrum dómsmálum sem ganga munu á næstu árum. Í þeim efnum mun m.a. reyna á það hvaða háttsemi og viðskiptaaðferðir geti talist til markaðsmisnotkunar skv. 117. gr. VVL. Markmið ritgerðarinnar var að varpa ljósi á ofangreind álitaefni. Í því skyni var í fyrsta lagi fjallað um þrjár tegundir markaðsmisnotkunar en þær eru: i) Markaðsmisnotkun í formi raunverulegra viðskipta, ii) markaðsmisnotkun í formi sýndarviðskipta og iii) markaðsmisnotkun í formi dreifingar rangra eða misvísandi upplýsinga. Í öðru lagi var fjallað um ofangreindar rannsóknir á meintri markaðsmisnotkun innan bankanna fyrir hrun. Rannsóknir sérstaks saksóknara hafa leitt af sér þrjár ákærur á árunum 2012 til 2013 vegna meintrar markaðsmisnotkunar innan bankanna. Eru málin og þá sérstaklega Kaupþingmálið er fjallar um eigin viðskipti bankans gríðarlega umfangsmikil. Hver svo sem málalok í umræddum málum verða, er ljóst að niðurstöðurnar munu veita mikilvægar leiðbeiningar um það hvaða háttsemi og viðskiptaaðferðir geti talist til markaðsmisnotkunar skv. 117. gr. VVL.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Magnús Ellert Bjarnason 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/15919
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/15919

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Magnús Ellert Bjarnason 1990-. Markaðsmisnotkun - Refsiverð háttsemi skv. 117. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 107/2008. 2013. http://hdl.handle.net/1946/15919