Back to results

Reykjavík University

Hafa markaðsherferðir íslenskra fyrirtækja og stofnanna aukið ferðamannastraum til Íslands?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessa verkefnis var að leitast við að svara þeirri rannsóknarspurningu „Hefur markaðssetning fyrirtækja og stofnanna aukið ferðamannastraum til Íslands“. Tekið var mið af 5 umfangsmiklum markaðsherferðum og skoðaður árangur þeirra. Verkefni þetta fjallar um markaðssetningu á Íslandi. Markaðssetning er hugmyndafræði sem getur verið fyrirtækjum og stofnunum eitt öflugasta vopnið í harðnandi samkeppni. Markaðssetning áfangastaða getur verið flókið ferli þar sem leiða þarf saman sjónarmið ólíkra hagsmunaaðila innan áfangastaðarins. Sú samvinna sem hefur farið fram er í gegnum Íslandsstofu en hún sér um markaðssetningu landsins erlendis en Ferðamálastofa heldur utan um markaðssetningu innanlands í samvinnu við fyrirtæki. Áhugi okkar er að greina hvort eðlilegur framgangur og þróun í aukningu ferðamanna eigi rætur að rekja til annarra þátta en markaðsherferða. Mikil samkeppni ríkir á alþjóðavettvangi um ferðamenn og án góðrar ímyndar verður Ísland ekki samkeppnishæft. Sterk ímynd landsins er mikilvæg og skipuleg vinna og uppbygging á henni þeim mun mikilvægari. Íslensk fyritæki og stofnanir taka mið af ímyndarkönnunum og nota í markaðsmálum sínum með ágætum árangri. Helstu niðurstöður benda til þess að markaðsherferðir hafi ekki haft bein áhrif á aukningu ferðamanna til landsins. Ferðamenn sem urðu fyrir mestum áhrifum markaðslegra þátta komu ekki sérstaklega til landsins vegna markaðsherferðanna. Þó skal tekið fram að langstærsti hluti ferðamannanna fengu hugmyndina um ferðalag til Íslands vegna almenns áhuga á náttúru og menningu landsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Finnbogi Haukur Birgisson 1986-
  • Sæunn Marinósdóttir 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14168
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14168

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Finnbogi Haukur Birgisson 1986-; Sæunn Marinósdóttir 1973-. Hafa markaðsherferðir íslenskra fyrirtækja og stofnanna aukið ferðamannastraum til Íslands?. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14168