Back to results

Reykjavík University

Viðhald malbiks á Akureyri - Reiknilíkan

Abstract

dc:description.abstract

Viðhald malbikaðra gatna er endalaust verkefni. Spálíkön eru af ýmsu tagi, allt frá sjónrænu mati yfir í flókin reiknilíkön. Markmið þessa verkefnis er að nýta gögn um hvenær götur á Akureyri voru malbikaðar, finna samspilið við umferðarþunga og áætla viðhaldsþörf næstu ára. Með því að afla gagna um sem flestar malbikanir (helst allar), skrá í gagnagrunn, finna sem flestar nothæfar upplýsingar um umferðaþunga og tengja við malbikunargagnagrunninn er ætlunin að búa til reynslulíkan. Líkanið verður síðan látið keyra í gegnum allt gatnakerfið og áætlað hversu stórt flatarmál gatna þurfi að malbika á hverju ári. Gagnagrunninn má svo einnig nýta til að finna hversu mikið malbik hefur verið notað til að yfirbræða götur að meðaltali síðastliðna áratugi. Allar þessar upplýsingar ættu að skila sér í betri meðferð fjármuna og betri vinnu við áætlanagerð hjá Akureyrarbæ. Niðurstaða reynslulíkansins var að það var fortíðarvandi til staðar, þ.e.a.s. margar götur sem hefði átt að vera búið að malbika. Með sjónrænu mati á viðkomandi götum reyndist líkanið eitthvað vanmeta uppsafnaða vandann.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jónas Valdimarsson 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/13994
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/13994

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jónas Valdimarsson 1974-. Viðhald malbiks á Akureyri - Reiknilíkan. 2013. http://hdl.handle.net/1946/13994