Back to results

Reykjavík University

Does Working Memory Capacity Influence Individuals Ability to Ignore Distraction Caused by Emotional Stimuli?

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða hvort að einstaklingar með háa eða lága vinnsluminnispönn, sýni mismunandi frammistöðu á tilfinningatengdu stroop prófi. Tilgáturnar voru a) að þátttakendur með háa og lága vinnsluminnispönn myndu sýna svipaða frammistöðu á stroop prófi með hlutlausum orðum (lítil truflun) og b) að einstaklingar með háa vinnsluminnispönn myndu sýna betri frammistöðu á stroop prófinu með bæði jákvæðum og neikvæðum tilfinningatengdum orðum (mikil truflun). Þátttakendur voru 39 talsins, 11 karlar og 28 konur. Þátttakendur framkvæmdu vinnsluminnipróf og tilfinningatengt stroop próf þar sem þeir nefndu litinn á orðum sem voru hlutlaus, jákvæð tilfinningatengd eða neikvæð tilfinningatengd. Niðurstöðurnar sýndu að þátttakendur með háa vinnsluminnispönn stóðu sig betur á stroop prófinu með jákvæðu tilfinningatengdu orðin samanborið við þátttakendur með lága vinnsluminnispönn. Eins og við var búist, var engin munur á milli þátttakenda með háa og lága vinnsluminnispönn þegar kom að því að framkvæma stroop prófið með hlutlausu orðunum. Niðustöðurnar sýndu einnig betri frammistöðu á neikvæða tilfinningatengda stroop prófinu hjá þátttakendum með háa samanborið við þátttakendur með lága vinnsluminnispönn. Munurinn var hins vegar ekki marktækur. Niðurstöðurnar eru í samræmi við fyrri rannsóknir, sem gefur til kynna að einstaklingar með háa vinnsluminnispönn eru betri í því að hunsa truflun sem fylgir tilfinningatengdum áreitum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sara Sigurjónsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12709
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12709

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sara Sigurjónsdóttir 1987-. Does Working Memory Capacity Influence Individuals Ability to Ignore Distraction Caused by Emotional Stimuli?. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12709