Back to results

Reykjavík University

Skynmyndaþjálfun í skeet skotfimi

Abstract

dc:description.abstract

Rannsóknin fólst í fimm vikna skynmyndaþjálfun með það að markmiði að kanna hvort hún auki árangur í skeet skotfimi. Rannsókn var gerð á tíu einstaklingum úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar þar sem þeir voru fengnir til að keppa á tveimur innanfélagsmótum auk þess sem gerðar voru mælingar í skothermi á nákvæmni þeirra á lyftu og sveiflu haglabyssu. Lagður var fyrir þá OMSAT spurningalisti til þess að meta hugræna færni. Fimm vikna skynmyndaþjálfunin fólst í þremur skynmyndaæfingum á viku ásamt tveimur skotæfingum. Einni skynmyndaæfingunni stjórnaði rannsakandi en hinum tveimur sáu keppendur um sjálfir. Fengu þeir fyrirmæli um að lámarki þyrftu þeir að skjóta 50 skotum á viku og að hámarki 100 skotum til þess að æfingamagn væri svipað. Mælingar og spurningalisti var lagður fyrir og eftir inngrip og tölur bornar saman. Helstu niðurstöður voru að eftir fimm vikna skynmyndaþjálfun jókst heildargeta hópsins um tvær dúfur á milli móta og skotgrúbba hópsins í skothermi minnkaði um 33 cm. Skotgrúbba segir til um þvermál á þéttleika tíu skota í skothermi. Hugræn færni á sviði skynmynda tók jákvæðum breytingum Samkvæmt niðurstöðum hefur skynmyndaþjálfun jákvæð áhrif á árangur í skeet skotfimi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólafur Össur Hansen 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12505
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12505

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ólafur Össur Hansen 1987-. Skynmyndaþjálfun í skeet skotfimi. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12505