Back to results

Reykjavík University

Líkamsástandspróf

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessari er ætlað að taka saman líkamsástandspróf sem eiga það sameiginlegt að vera tiltölulega einföld og ódýr í uppsetningu og framkvæmd. Jafnframt því eiga þau það sameiginlegt að flest þeirra henta kröfum ólíkra hópa hvort sem um er að ræða afreksíþróttafólk, hinn almenna líkamsræktariðkanda og jafnvel kyrrsetufólk. Hvort sem um er að ræða afreksíþróttafólk eða almennan líkamsræktariðkanda geta líkamsástandspróf sem mæla getu fólks á mörgum mismundandi sviðum komið sér vel. Fyrir afreksfólk í íþróttum skipta þau miklu máli varðandi hluti eins og að vita hvar það stendur í samanburði við aðra keppinauta, hvar þau standa í dag miðað við á sama tíma fyrir ári síðan eða tveimur, hvar þau standa miðað við ákveðin lágmörk sem þarf að ná og áfram væri hægt að telja. Fyrir hinn almenna líkamsræktariðkanda skipta líkamsástandsprófin máli hvað varðar lífsgæði. Fólk í góðu líkamlegu formi greinist síður með hina ýmsu sjúkdóma eins og krænsæðasjúkdóma, háþrýstingsvandamál, sykursýki og fleiri. Eins koma þau að góðum notum þegar farið er af stað í líkamsrækt og meta á árangurinn jafn óðum sem og þegar fram líða stundir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Óskar Örn Hauksson 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12467
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12467

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Óskar Örn Hauksson 1984-. Líkamsástandspróf. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12467