Back to results

Reykjavík University

Börn af erlendu bergi brotin og íþróttir

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hversu mörg innflytjendabörn stunda reglulega skipulagðar íþróttir hjá íþróttafélögum á höfuðborgarsvæðinu og hvaða viðhorf þau bera til þess. Einnig var athugað hvaða viðhorf íþróttafulltrúanir hafa á þátttöku innflytjendabarna í íþróttum og hvort eitthvað sé eða hafi sérstaklega verið gert til að upplýsa og ná til þessa hóps. Sérstaklega var skoðað hversu mörg barnanna nýta sér frístundakort ÍTR til að greiða niður æfingagjöld. Framkvæmdar voru tvær nafnlausar viðhorfskannanir, annars vegar á 29 innflytjendabörnum sem komu frá Hólabrekkuskóla og Landakotsskóla og hins vegar á 8 fulltrúum íþróttafélaga á höfuðborgarsvæðinu. Einnig voru skoðaðar heimasíður íþróttafélaganna með það að markmiði að kanna hversu margar innihalda upplýsingar um starfsemi félagsins á öðru tungumáli en íslensku. Niðurstöður voru metnar eftir helstu bakgrunnsbreytum, svo sem kyn, mismunandi skólum og eftir því hvort barnið eigi báða foreldra eða annað af erlendum uppruna. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar er tíðni íþróttaiðkunar erlendra barna mun lægri heldur en íslenskra og einungis 31% þeirra eyða 4 klst eða meira á viku í íþróttir. Strákar voru duglegri að stunda íþróttir og fleiri börn sem komu úr Landakotsskóla stunda reglulega íþróttir. Einnig kom í ljós að töluvert vantar upp á að bæta upplýsingaflæði til innflytjenda um starfsemi íþróttafélaga ásamt að kynna fyrir þeim frístundakortið og hvernig hægt er að sækja um það.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnar Örn Gunnarsson 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12466
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12466

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnar Örn Gunnarsson 1984-. Börn af erlendu bergi brotin og íþróttir. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12466