Back to results

Reykjavík University

Menntun körfuknattleiksþjálfara á Íslandi vorið 2012

Abstract

dc:description.abstract

Markmið ritgerðarinnar er var að kanna hver menntun körfuknattleiksþjálfara yngri flokka er á Íslandi. Ritgerðinni er skipt upp í tvo hluta, annars vegar fræðilegan hluta, þar sem fjallað er um upphaf og þróun körfuknattleiks, um hlutverk og mikilvægi þjálfarans og svo um þjálfaramenntun á Íslandi. Hins vegar er rannsóknarhluti ritgerðarinnar, þar sem farið er yfir rannsókn um menntun körfuknattleiksþjálfara yngri flokka á Íslandi. Þátttakendur rannsóknarinnar voru allir körfuknattleiksþjálfarar yngri flokka á Íslandi, innan aðildarfélaga Körfuknattleikssambands Íslands vorið 2012. Saminn var spurningarlisti og hann sendur 149 þjálfurum, og var svarhlutfall 51%. Öll úrvinnsla gagna var síðan unnin í forritinu IBM SPSS Statistics 20 og Excel 2010 og þær niðurstöður síðan túlkaðar. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að stærsti hluti þjálfara eru karlmenn á aldrinum 30-34 ára. Meira er um að þeir sem eru þjálfaramenntaðir þjálfi í eldri flokkum, heldur en í þeim yngri, þ.e. að eftir því sem iðkendur eru eldri því algengara er að þjálfarar þeirra hafi lokið þjálfaramenntun á einhverju stigi. Einnig leiddu niðurstöður í ljós að þjálfaramenntaðir þjálfarar eyddu meiri tíma í skipulagningu og undirbúning æfinga frekar en þeir sem enga þjálfaramenntun hafa.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birgitta Maggý Valsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12457
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12457

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birgitta Maggý Valsdóttir 1983-. Menntun körfuknattleiksþjálfara á Íslandi vorið 2012. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12457