Back to results

Reykjavík University

Viðhorf og kröfur til þjálfara á líkamsræktarstöðvum

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð var viðhorf og kröfur til þjálfara á fimm líkamsræktarstöðvum á höfuðborgarsvæðinu skoðað. Í rannsókninni var gögnum aflað með eigindlegum og megindlegum aðferðum. Viðtöl voru tekin við yfirmenn þjálfara á líkamsræktarstöðvunum á tímabilinu 16. – 23. mars 2012, en þær voru World Class, Hreyfing, Sporthúsið, Reebok Fitness og Árbæjarþrek. Megindleg rannsóknarvinna fór fram á tímabilinu 5. – 15. apríl 2012 þar sem notast var við spurningalista. Markmið rannsóknarinnar er að sýna almenningi hverjar kröfur yfirmanna til þjálfara eru á þessum fimm líkamsræktarstöðvum og kanna hvort munur er á viðhorfi íþróttamanna og annarra iðkenda á líkamsræktarstöðvum til þjálfara á líkamsræktarstöðvum. Niðurstöður sýna að meiri kröfur til menntunar eru gerðar til einkaþjálfara en hóptímakennara. Munur var á viðhorfi hópanna gagnvart menntun þjálfara á líkamsræktarstöðvum þar sem íþróttamenn töldu hana lakari. 23% iðkenda á líkamsræktarstöð fundu fyrir neikvæðu viðhorfi eftir tíma hjá þjálfara á móti 6% íþróttamanna. Martækur munur var á hópunum varðandi viðhorf til klæðaburðar þjálfara á líkamsræktarstöð t (1) = 13,393, <0,05.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Arnór Ásgeirsson 1989-
  • Jón Sverrisson 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12427
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12427

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Arnór Ásgeirsson 1989-; Jón Sverrisson 1988-. Viðhorf og kröfur til þjálfara á líkamsræktarstöðvum. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12427