Back to results

Reykjavík University

Lækning án landamæra - reglur evrópuréttar um heilbrigðisþjónustu yfir landamæri

Abstract

dc:description.abstract

Þessari ritgerð er ætlað að kortleggja þær reglur sem gilda um heilbrigðisþjónustu yfir landamæri í evrópurétti. Heilbrigðisþjónusta yfir landamæri felur í sér að sjúklingur eða þjónustuveitandi ferðast til annars aðildarríkis Evrópusambandsins í þeim tilgangi að móttaka eða veita heilbrigðisþjónustu. Evrópudómstóllinn hefur staðfest að þjónusta sem þessi falli undir þjónustufrelsið í skilningi ákvæða 56.-57. gr. Sáttmálans um framkvæmd ESB. Í ritgerðinni er reynt að varpa ljósi á umgjörð og regluverk slíkrar tegundar heilbrigðisþjónustu og hvernig hún hefur birst í framkvæmd. Í því ljósi eru skoðaðir nokkrir grundvallardómar Evrópudómstólsins á þessu sviði og hvernig þeir hafa mótað og haft áhrif á framkvæmdina. Helstu niðurstöður dómstólsins sýna að sjúklingur á að meginstefnu til rétt á að fá heilbrigðisþjónustu yfir landamæri endurgreidda frá heimaríkinu. Í sumum tilvikum getur heimaríkið þó neitað sjúklingnum um endurgreiðslu nema hann hafi fengið heimild til að sækja þjónustuna. Í ritgerðinni er fjallað um þau tilvik þar sem hægt er að krefjast áðurfenginnar heimildar. Í ritgerðinni er einnig fjallað um tilskipun 2011/24 um réttindi sjúklinga í heilbrigðisþjónustu yfir landamæri og samsvörun hennar við dóma Evrópudómstólsins. Loks er sjónum beint að Íslandi, sem ekki er aðili að Evrópusambandinu þegar þessi ritgerð er skrifuð, hvort og þá af hverju sömu reglur gildi hér á landi, hugsanleg áhrif tilskipunar 2011/24 og tækifæri Íslands í heilbrigðisþjónustu yfir landamæri.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lena Mjöll Markusdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12349
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12349

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lena Mjöll Markusdóttir 1989-. Lækning án landamæra - reglur evrópuréttar um heilbrigðisþjónustu yfir landamæri. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12349