Back to results

Reykjavík University

Mat á líkamstjóni íþróttamanna, lögfræðileg álitaefni

Abstract

dc:description.abstract

Meginmarkið þessarar BA-ritgerðar er að gera grein fyrir réttarstöðu íþróttmanna til skaðabóta reiknuðum á grundvelli skaðabótalaga. Þetta viðfangsefni er afmarkað nánar með skoðun á hvort sérstök sjónarmið séu uppi við mat á varanlegum miska íþróttamanna samkvæmt 4. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og hvort sérstök sjónarmið séu uppi við mat á varanlegri örorku þeirra samkvæmt 5. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Þá er reynt skoða tryggingarétt íþróttamanna. Efnistök eru takmörkuð við knattspyrnu- og handboltaiðkendur. Skoðuð voru laga- og reglugerðarákvæði, sem og staðlaðir samningar íþróttafélaganna og tryggingarskilmálar. Mat á varanlegum miska er eins hjá þessu aðilum sem öðrum. Sérstaka matið er notað þegar tjón er einstaklingi sérstaklega þungbært. Þetta getur átt við einstaklinga sem eru hálfatvinnumenn eða áhugamenn er lítur að getu til íþróttaiðkunar en vart við atvinnumennina. Við mat á varanlegri örorku verður taka til þeirra háulauna sem oft fylgja atvinnumennsku í íþróttum og þar af leiðandi mögulega miklu fjárhagslegu tjóni. Á móti er atvinnumannaferill skammur. Sértæk sjónarmið varðandi mat á varanlegri örorku atvinnumanna eru mörg en ekki nema í undantekningar tilfellum varðandi hálfatvinnumenn eða áhugamenn enda fjárhaglegt tjón þeirra við það að geta ekki stundað íþróttina oftast lítið. Slysahugtakið er takmarkað í almannatryggingarrétti við skyndilega utanaðkomandi atburð. Þetta skiptir máli þar sem slysaatburðir í íþróttum falla iðulega utan þess. Þessu er reynt að mæta í samningum íþróttamanna og félaga. Hvað þetta varðar virðast samningar knattspyrnumanna skýrari en handboltamanna. Skilmálar trygginga eru mismunandi, bæði hvað varðar skilgreiningu slyss og ákvörðun bóta. Þeir eru þó allir almennir líkt og miskinn og taka því ekki á varanlegu tekjutapi. Almennt hefur verið lítið fjallað um þessi álitaefni hvort sem það er hér á landi eða í Danmörku. Telur höfundur að það bendi þó ekki til þess að álitefni sé ekki til staðar heldur þurfi almennt að upplýsa íþróttamenn betur um réttarstöðu sína.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ögmundur Kristinsson 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12330
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12330

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ögmundur Kristinsson 1989-. Mat á líkamstjóni íþróttamanna, lögfræðileg álitaefni. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12330