Reykjavík University
Meginreglan um að eignarhaldi á landi fylgi veiðiréttur í vatni á eða fyrir því landi
Abstract
dc:description.abstractUmfjöllunarefni ritgerðarinnar er hin forna regla íslensk réttar um að eignarhaldi á landi fylgi veiðiréttur í vatni á eða fyrir því landi, sbr. nú 1. mgr. 5. gr. laga um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006. Í upphafsköflum ritgerðarinnar er stiklað á stóru yfir hugtök eins og eign og eignarréttindi, auk þess sem höfundur gerir fasteignum almenn skil. Því næst er sögulegt yfirlit yfir meginreglu 1. mgr. 5. gr. laga nr. 61/2006. Í ritgerðinni er fjallað um veiðirétt við uppskiptingu fasteigna. Umfjöllun um uppskiptingu fasteigna í séreign er tvíþætt og beinist að skiptingu fyrir og eftir gildistöku vatnalaga, nr. 15/1923. Fyrir gildistöku laganna voru engin ákvæði í íslenskum rétti sem takmörkuðu aðskilnað á veiðirétti frá landareign. Við sölu á hluta úr séreign fyrir gildistöku vatnalaga hafa dómstólar þar af leiðandi litið svo á að veiðiréttur hafi fylgt hinu selda landi nema kveðið hafi sérstaklega á um hið gagnstæða í afsali. Eftir gildistöku vatnalaga og fram til gildistöku laga nr. 61/2006 var óheimilt að skilja veiðirétt frá landareign. Við sölu á hluta úr séreign var þannig ekkert í lögum því til fyrirstöðu að veiðiréttur yrði skilinn frá fasteign sem féll ekki undir hugtakið landareign í skilningi lax- og silungsveiðilaga. Samkvæmt lögum nr. 61/2006 verður veiðiréttur nú ekki skilinn frá fasteign nema að uppfylltum nánar tilgreindum skilyrðum. Eftir landskipti á fasteign í óskiptri sameign helst veiðiréttur á hendi allra sameigenda nema staðbinding veiðiréttinda sé samþykkt af öllum sameigendum, sbr. 1. mgr. 3. gr. landskiptalaga, nr. 46/1941. Að lokum fjallaði höfundur um flutning veiðiréttar til fasteignar sem á hvergi liggur að vatni. Nú til dags er útilokað er að vinna ítak í veiðirétti fyrir landi annars manns samkvæmt hefðarlögum, nr. 46/1905, enda hafi ákvæði vatnalaga um skorður á aðskilnaði veiðiréttar frá landareign girt fyrir stofnun veiðiréttar með þessum hætti.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Pétur Örn Pálmarsson 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/12326
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/12326