Back to results

Reykjavík University

Sýndarviðskipti sem markaðsmisnotkun, sbr. 2. tl. 1. mgr. 117. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007

Abstract

dc:description.abstract

Markaðsmisnotkun í formi viðskipta snýst um að reyna að hafa áhrif á markaðsverð fjármálagerninga í þeirri von að hinn almenni fjárfestir fylgi í kjölfarið. Markmið lagareglna sem banna markaðsmisnotkun er því að stuðla að trúverðugum verðbréfamörkuðum, eðlilegri og gagnsærri verðmyndun á markaði og trausti fjárfesta á verðbréfamörkuðum. Beiting sýndarviðskipta og annars konar blekkinga í viðskiptum, sbr. 2. tl. 1. mgr. 117. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, rýrir traust almennings á verðbréfamarkaði og er mikilvægt að sporna við slíkri háttsemi til þess að stuðla að traustum viðskiptum á markaði. Umfjöllunarefni ritgerðarinnar er sú tegund markaðsmisnotkunar að beita blekkingum eða sýndarmennsku í viðskiptum, bæði með því að eiga viðskipti með fjármálagerninga í blekkingarskyni sem og með þeirri verknaðaraðferð að blekkja markaðinn með dreifingu rangra og/eða misvísandi upplýsingum um fjármálagerninga. Ritgerðin hefst á almennri umfjöllun um þær lagareglur sem taka á markaðsmisnotkun í lögum um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 sem byggir á 2. mgr. 1. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2003/6/EB. Megin umfjöllunarefni ritgerðarinnar snýr að sýndarviðskiptum sem markaðsmisnotkun, í því skyni að er notast við leiðbeiningar evrópskrar samstarfsnefndar eftirlitsaðila (CESR) sem tilgreinir þá háttsemi sem getur talist vera markaðsmisnotkun. Þá verður fjallað um það eftirlitshlutverk sem fjármálafyrirtæki, skipulegir verðbréfamarkaðir og Fjármálaeftirlitið gegnir í því samhengi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Dagný Jónsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12325
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12325

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Dagný Jónsdóttir 1988-. Sýndarviðskipti sem markaðsmisnotkun, sbr. 2. tl. 1. mgr. 117. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12325