Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar skýrslu er að auka yfirsýn stjórnanda hjá rekstrarfyrirtæki á rísandi áhættuþáttum sem snúa að rekstri þess. Við uppsetningu skýrslunnar verður stuðst við áhættuúttekt sem byggð er á innra matsferli fjármálafyrirtækja á lágmarks eiginfjárþörf samkvæmt alþjóðlegu Basel II reglunum. Innra matsferli Basel II reglnanna nefnist ICAAP og er tilgangur þess að draga fram helstu áhættur í rekstri, meta umfang þeirra og stærðargráður og meta hvernig hægt er að mæta þessum áhættum án þess að setja rekstrarhæfni fjármálafyrirtækisins í hættu . Miðað við afleiðingar efnahagslægðarinnar, sem Vesturlöndin gengu nýverið í gegnum, telst líklegt að aukin áhersla verði lögð á áhættustýringu innan fyrirtækja. Skýrsla sem þessi getur því talist gagnleg viðbót við áhættustýringu innan rekstrarfyrirtækja. Í eftirfarandi skýrslu var fyrirtækið Marel hf. skoðað, en það rekur uppruna sinn til Háskóla Íslands. Marel er alþjóðlegt fyrirtæki og felst starfsemi þess fyrst og fremst í framleiðslu á verkunarvélum fyrir matvælaiðnað. Rekstrarhorfur fyrirtækisins eru góðar, þar sem ætla má aukinn vöxt á þeim mörkuðum sem fyrirtækið starfar á. Fyrirtækið þarf að huga að fjölda áhættuþátta sem það getur orðið fyrir og má þar nefna markaðsáhættu, útlánaáhættu, rekstraráhættu, lausafjáráhættu, sem og aðrar áhættur. Í skýrslunni voru skoðuð möguleg áhrif ofangreindra áhættuþátta á rekstur fyrirtækisins. Framkvæmdar voru næmnigreiningar, eins og hagnaður í húfi (e. earnings at risk), fjármagnsáætlun með mismiklum efnahagslegum niðursveiflum, álagsprófanir og sviðsmyndagreining. Auk þess var lagt mat á helstu áhættur í rekstri og metnar voru gjaldþrotalíkur fyrirtækisins með líkani Merton og Altman Z-score. Helstu niðurstöður skýrslunnar sýna að rekstur fyrirtækisins er einkar næmur fyrir breytingum á sölu- og kostnaðarverði seldra vara. Að öðru leyti er fyrirtækið vel í stakk búið til þess að mæta öllum áhættuþáttum sem geta myndast miðað við núverandi fjárhags- og peningastöðu, þegar tekið er tillit til notkunar lánalína.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Örn Brynþór Arnarsson 1989-
- Teitur Páll Reynisson 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/12317
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/12317