Back to results

Reykjavík University

Mikilvægi menningarlæsis fyrir viðskipti milli Íslands og Kína

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að kanna mikilvægi menningarlæsis fyrir viðskipti milli Íslands og Kína. Einnig hvort menningarmunur milli landanna sé mögulega hindrun og hvort menningarlæsi sé þar með lykillinn að farsælum viðskiptum milli Íslands og Kína. Til að skýrsluhöfundi tækist að kafa djúpt ofan í viðfangsefnið var stuðst við bæði megindlegar og eigindlegar rannsóknaraðferðir. Við framkvæmd á megindlegri aðferð var send spurningakönnun til 80 fyrirtækja sem áttu það sameiginlegt að vera í viðskiptum við Kína, þátttakendur voru 23 fyrirtæki í heildina. Til að fá enn dýpri skilning á viðfangsefninu var einnig stuðst við eigindlega aðferð og voru tekin viðtöl við fimm einstaklinga sem áttu það sameiginlegt að hafa reynslu og þekkingu á viðskiptum við Kína. Helstu niðurstöður benda til þess að gríðarlega mikilvægt sé fyrir stjórnendur íslenskra fyrirtækja í viðskiptum við Kína að vera meðvitaðir um mikilvægi menningarlæsis til að koma í veg fyrir að falla í þær gildrur sem geta orðið á veginum. Niðurstöður sýna að algengt er að upplifa einhvers konar misskilning í samskiptum við kínverska starfsmenn og voru atriði eins og tungumálaörðugleikar, vanþekking á kínverskri menningu og vanþekking á hugtakinu Guanxi og Mianzi nefnd meðal atriða sem fyrirtæki þurfa að huga vel að. Sjá nánar kafla 2 um menningu og 4.2.1 um Guanxi og 4.2.2. um Mianzi. Þegar fræðilegi hluti verkefnisins er borinn saman við niðurstöður rannsóknarinnar má sjá fjölmörg atriði sem fyrirtæki í viðskiptum við Kína þurfa að kynna sér til að viðskiptin verði sem farsælust. Saga Kína hefur mótað menningu og samfélagið í heild sinni í meira en 5000 ár og útskýrir á margan hátt hvers vegna samfélagið í Kína, menningin, viðskiptahættir og fleira er eins og það er. Sjá nánar kafla 3 og 4 um sögu og menningu Kína. Samkvæmt rannsókn Hofstedes og þeim menningarvíddum sem hann hefur sett fram þá eru Ísland og Kína andstæð ríki að flestu leyti, sem getur haft áhrif á viðskipti milli landanna. Sú niðurstaða sýnir að meiri líkur eru á hindrunum sökum mikils menningarmunar. Sjá nánar kafla 2.6.1 um menningarvíddir Hofstedes. Þátttakendur í rannsókninni voru á heildina litið mjög ánægðir með viðskiptin milli landanna og ákveðinn samhljómur var með niðurstöðum spurningakönnunarinnar og viðtalanna. Óhætt er að segja að niðurstöður sýni fram á að lykillinn að velgengni í viðskiptum við Kína sé menningarlæsi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrafnhildur Jörgensdóttir Moestrup 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10752
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10752

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrafnhildur Jörgensdóttir Moestrup 1978-. Mikilvægi menningarlæsis fyrir viðskipti milli Íslands og Kína. 2012. http://hdl.handle.net/1946/10752