Back to results

Reykjavík University

Breyting á markaðssetningu á íþróttavörum eftir efnahagshrun

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð fjallar um markaðssetningu á íþróttavörum í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi haustið 2008. Rannsóknarspurning ritgerðarinnar er: Hvernig hefur markaðssetning á íþróttavörum breyst eftir efnahagshrun? Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að þau fyrirtæki sem rætt var við eru nú þegar byrjuð að notast við aðra auglýsingamiðla en þau gerðu fyrir efnahagshrun. Markaðssetningin er þó ekki það eina sem hefur breyst heldur hafa samningar sem fyrirtæki gera við viðskiptavini sína einnig breyst. Breytingin á samningunum er annars vegar fólgin í því að heildarfjárhæðir samninga hafa lækkað og hinsvegar eru gerðir færri samningar núna heldur en fyrir efnahagshrunið. Niðurstöðurnar leiddu jafnframt í ljós að það er ekki algilt að fyrirtæki hafi dregið úr markaðssetningu eftir efnahagshrunið. Til að mynda hafa tvö þeirra fyrirtækja sem rætt var við lagt til meira fjármagn í auglýsingar eftir efnahagshrunið heldur en þau gerðu fyrir efnahagshrunið. Fyrirtækin sem rætt var við eiga það sameiginlegt að hafa öll orðið vör við breytingar á markaðssetningu samkeppnisaðila sinna. Einnig eru öll fyrirtækin byrjuð að nota samskiptavefinn Facebook til markaðssetningar. Hafa verður í huga að erfitt getur verið að greina á milli þess hvort aukin notkun á Facebook sé bein afleiðing efnahagshrunsins eða hvort hún stafi fremur af auknum tækniframförum undanfarinna ára.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Guðni Þorsteinn Guðjónsson 1988-
  • Sindri Már Sigurþórsson 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10735
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10735

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðni Þorsteinn Guðjónsson 1988-; Sindri Már Sigurþórsson 1986-. Breyting á markaðssetningu á íþróttavörum eftir efnahagshrun. 2012. http://hdl.handle.net/1946/10735