Back to results

Reykjavík University

Tengsl heildarkostnaðar og ávöxtunar séreignarsjóða

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar er að skoða samspil ávöxtunar og heildarkostnaðar séreignarsjóða á Íslandi. Leitast er við að draga fram sem heildstæðasta mynd af þeim þáttum sem móta og stýra rekstri séreignarsjóða. Sýnt er fram á hvernig kostnaður sem fellur til við fjárfestingu sparnaðar getur til langs tíma haft mikil áhrif á ávöxtun sjóðfélaga og dregið úr heildarsparnaði þeirra. Í rannsókninni er stuðst við kennitölur úr ársskýrslum Fjármálaeftirlitsins um lífeyrissjóði og skoðaðir 47 sjóðir á árabilinu 2004 til 2010. Settar eru fram fjórar tilgátur um að fjárfestingarstefna, stærð sjóða, rekstrarsaga og sérstök útgreiðsla séreignarsparnaðar hafi áhrif á heildarkostnað. Rannsóknin leiðir í ljós að munur er á heildarkostnaði sjóða sem fjárfesta í verðtryggðum innlánum og þeirra sem notast við annars konar fjárfestingarstefnu. Ekki er hægt að sýna fram á að aldur sjóða og sérstök útgreiðsla séreignarsparnaðar hafi áhrif á heildarkostnað þeirra. Marktækur munur reynist ekki vera á milli sjóða eftir stærð og má telja líklegt að íslensku séreignarsjóðirnir nái ekki stærðarhagkvæmni vegna smæðar sinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Haraldur Ársælsson 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10730
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10730

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Haraldur Ársælsson 1978-. Tengsl heildarkostnaðar og ávöxtunar séreignarsjóða. 2012. http://hdl.handle.net/1946/10730