Back to results

Hólar University College

Ímynd Hvolsvallar sem áfangastaðar: Áhrif á aðdráttarafl og dvöl ferðamanna

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um ímynd Hvolsvallar sem áfangastaðar ferðamanna og hvernig hægt sé að styrkja hana til að lengja dvöl ferðamanna og auka aðdráttarafl staðarins. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvaða þættir móta ímynd Hvolsvallar, hvernig staðurinn er metinn af aðilum sem tengjast ferðaþjónustu og hvaða tækifæri eru til staðar til að þróa hann áfram sem áfangastað. Notuð var eigindleg rannsóknaraðferð og tekin voru hálfopin viðtöl við hagsmunaaðila sem tengjast ferðaþjónustu og þróun svæðisins. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að Hvolsvöllur er fyrst og fremst talinn þjónustukjarni og viðkomustaður á ferðamannaleið, frekar en sjálfstæður áfangastaður þar sem ferðamenn velja að dvelja lengur. Styrkleikar staðarins felast meðal annars í góðri staðsetningu, nálægð við vinsæla ferðamannastaði, grunnþjónustu og tengingu við menningu og sögu svæðisins. Tækifæri eru til að styrkja ímynd Hvolsvallar með betri nýtingu á sögu, menningu, afþreyingu, þjónustu og aukinni samvinnu ferðaþjónustuaðila. Lykilorð: Hvolsvöllur, ímynd áfangastaðar, ferðaþjónusta, viðkomustaður, dvalartími.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólöf Sara Garðarsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53361
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53361

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ólöf Sara Garðarsdóttir 1988-. Ímynd Hvolsvallar sem áfangastaðar: Áhrif á aðdráttarafl og dvöl ferðamanna. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53361