Back to results

Hólar University College

Ræs! – Síld! : rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn er sambandið milli safnsins og nærsamfélagsins skoðað og er markmiðið að varpa ljósi á hvaða þættir geti stuðlað að sterkari tengslum þar á milli. Rannsóknin er eigindleg, um er að ræða tilfellarannsókn og megin gagnasöfnun fór fram í formi rýnihópaviðtala. Fyrri rannsóknir undirstrika mikilvægi safna sem menntastofnana og að mikilvægt sé að þau tengist fjölbreyttum hópum samfélagsins. Þetta hefur reynst mörgum söfnum erfitt. Síldarminjasafn Íslands sinnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu á Siglufirði, en erfiðast hefur reynst að ná til fólks í heimabyggð sem er þó mikilvægur markhópur safnsins. Rannsóknin leitast við að greina þá þætti sem hafa áhrif á tengsl safnsins við nærsamfélagið, hvernig styrkja megi sambandið þar á milli og um leið að stuðla að aukinni þekkingu á menningararfinum og inngildingu fjölbreyttra hópa. Með því að brúa bilið milli safnsins og heimafólks er möguleiki á að fjölga gestum og stuðla að eflingu á félagsanda í samfélaginu. Rannsókninni er ætlað að vera innlegg í umræðuna um tengsl safna og samfélaga og gefa innsýn í hvernig hægt sé að efla samfélagslega þátttöku safna þannig að þau tengist betur sínu nærsamfélagi. Helstu niðurstöður benda til að fjölbreytt viðburðahald, og margskonar samstarf við heimafólk skiptir sköpum hvað varðar að dýpka tengsl safna við sín nærsamfélög. Lykilorð: Safn, samfélag, samfélagsþátttaka, inngilding, staðartilfinning, að tilheyra

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Daníel Pétur Daníelsson 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51490
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51490

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Daníel Pétur Daníelsson 1978-. Ræs! – Síld! : rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði. 2025. https://hdl.handle.net/1946/51490