Hólar University College
Hönnun áfangastaðarins Goðafoss með hliðsjón af malbikuðum göngustígum
Abstract
dc:description.abstractGoðafoss er mjög vinsæll ferðamannastaður þar sem göngustígar hafa verið uppfærðir til að geta tekist á við mikinn fjölda gesta sem koma til að skoða fossinn. Valið var malbik sem efni í stígana þar sem það lofaði góðu aðgengi og þarfnaðist lítils viðhalds. Í þessari ritgerð er notast við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem malbikaðir göngustígar við Goðafoss er tilviksrannsókn til að komast að því hvaða áhrif malbikaðir göngustígar hafa á staðarandann og náttúruna, af hverju malbik varð fyrir valinu og að hvaða leyti malbikaðir göngustígar tryggja gott aðgengi og öryggi ferðamanna. Niðurstöður sýna að malbiksgönguleiðir eru áberandi og hafa neikvæð áhrif á staðbundinn anda þar sem manngerðar framkvæmdir taka yfir náttúruna. Gestir leita að íslenskri menningu sem hefur mikla möguleika á að sameinast við náttúruna hjá Goðafossi til að auka verðmæti svæðisins. Reynslan sýnir fram á að malbik, samanborið við bundið slitlag og hellulögn, endist vel og virðist að falli vel í landslagið. Niðurstaðan er sú að malbik er skaðlegt heilsu manna og hefur neikvæð umhverfisáhrif á nærliggjandi vistkerfi. Þess vegna er mikilvægt að horfa til þessarar þekkingar við uppbyggingu ferðamannastaða sem og að stunda frekari rannsóknir á þessu sviði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Regina Gentner 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/47787
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/47787