Back to results

Hólar University College

Rein tension at two different speeds in tölt in Icelandic riding horses

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort og þá hvernig hraði hefur áhrif á taumþrýsting á tölti í hópi íslenskra reiðhesta. Taumþrýstingur var mældur á mismunandi hraða á tölti, það var hraða 1 (meðaltal 3,36 ± 0,47 m/s) og hraða 2 (meðaltal 4,77 ± 0,39 m/s) hjá sjö íslenskum reiðhestum. Tilgáta rannsóknarinnar var að það væri hærri meðaltaumþrýstingur á hraða 2 en hraða 1. Einn atvinnuknapi reið öllum hestunum á 30 m braut í reiðhöll, þar sem mælingar á taumþrýstingi fóru fram með taumþrýstingsmæli frá Centaur ©, gerð S2013. Allir hestarnir voru hitaður eins upp. Enginn marktækur munur fannst milli hraðanna tveggja í meðaltaumþrýstingi (16,58 ± 5,72 á móti 16,15 ± 6,21 N), meðaltals hámarkstaumþrýstingi (37,05 ± 12,88 á móti 34,89 ± 9,95 N) og meðaltals útslagi (34,19 ± 12,00 á móti 30,56 ± 8,11 N). Það kom fram hærri meðaltals lágmarkstaumþrýstingur á hraða 1 miðað við á hraða 2 (0.91 ± 1.81 á móti 0.36 ± 0.22 N; p<0.05). Meðaltal lágmarkstaumþrýstings á vinstri taum var hærra en á hægri taum á minnsta hraðanum, hraða 1 (p <0,05) og það var meira útslag að meðaltali á hægri taum en vinstri taum (p = 0,0095) á þessum hraða. Það kom fram tilhneiging til hærri meðaltals hámarkstaumþrýstings á hægri taum miðað við á vinstri taum á hraða 1 (p = 0,0855). Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til að hraði hafi ekki áhrif á taumþrýsting á tölti. Ekki er hægt að alhæfa út frá niðurstöðunum þar sem þær kunna að skýrast af því að úrtakið var lítið, eða af einstaklingsmun milli hrossa og af þröngum hraðamörkum. Nánari rannsóknir á taumþrýstingi á tölti hjá íslenskum hestum í tengslum við hraða eru nauðsynlegar til að veita meiri þekkingu á taumþrýstingi og taka mið af velferð hrossa. Lykilorð: Íslenskir hestar, taumþrýstingur, tölt, hraði, ábendingar

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Nielsen, Liva Marie Hvarregaard, 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36314
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36314

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Nielsen, Liva Marie Hvarregaard, 1995-. Rein tension at two different speeds in tölt in Icelandic riding horses. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36314