Hólar University College
Beint flug Super Break til Akureyrar : væntingar farþega og upplifun
Abstract
dc:description.abstractÞrátt fyrir mikla aukningu ferðamanna á Íslandi yfir vetrartímann hefur ekki tekist að stuðla að betri dreifingu ferðamanna um landið. Markaðsstofa Norðurlands, Flugþróunarsjóður og Air 66N hafa stigið mikilvægt skref í uppbyggingu millilandaflugs um Akureyrarflugvöll. Nú þegar er árangur verkefnisins sýnilegur, þar sem að ferðaskrifstofan Super Break hefur hafið beint millilandaflug inn á svæðið frá Bretlandi. Meginmarkmið rannsóknarinnar er að skoða viðhorf og væntingar farþega Super Break á dvöl þeirra á Norðurlandi eystra og hvort væntingum þeirra sé mætt. Til þess að fá svör við þessum spurningum var spurningakönnun lögð fyrir farþega Super Break og einnig voru viðtöl tekin við hagsmunaaðila. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að farþegar Super Break eru heilt yfir ánægðir með dvöl sína á Norðurlandi eystra og jákvæðir fyrir því að koma aftur. Væntingum þeirra um að upplifa snjó, kulda og norðurljós var mætt í 90% tilfella. Lykilorð: Norðurland eystra, árstíðabundnar sveiflur, væntingar, upplifun, áfangastaður.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Elva Dögg Pálsdóttir 1990-
- Sólveig Hulda Árnadóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/33971
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/33971