Back to results

Hólar University College

Erlendir ferðamenn og íslensk umferðarmannvirki

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessa verkefnis er að skoða hversu mikilvægt það er að auka öryggi erlendra ferðamanna á vegum Íslands og hvaða leiðir gætu verið vænlegastar til árangurs. Til þess að upplifun ferðamanna af Íslandi sé sem best þarf ferðamönnum að finnast þeir öruggir á sínum ferðalögum. Mikil aukning hefur orðið í umferðarslysum erlendra ferðamanna undanfarin ár og því fylgir töluverður kostnaður í viðbót við tilfinningalega tjónið sem fólk upplifir í tengslum við slys. Þrátt fyrir að nokkur vitundarvakning hafi orðið meðal Íslendinga seinustu árin varðandi öryggi í umferðinni þarf að gera enn betur og átta sig á hvernig við getum undirbúið okkar erlendu gesti sem hingað koma undir það óvænta sem oft leynist við akstur um landið. Nokkuð er til af gögnum og rannsóknum sem hafa verið unnin af fagaðilum hérlendis og erlendis og voru slík fyrirliggjandi gögn greind við gerð þessa verkefnis. Helstu niðurstöður voru m.a. að mikilvægt er fyrir okkur Íslendinga að halda umferðarmannvirkjum okkar í mun betra ástandi ef við ætlum að halda landinu okkar á kortinu sem ferðamannaland. Auk þess þarf að gera átak í að bæta aðgengi erlendra ferðamanna að upplýsingum um umferðarmenningu og akstursskilyrði á íslenskum vegum. Lykilorð: Umferðarmannvirki, erlendir ferðamenn, umferðarslys, upplýsingagjöf, öryggi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hilmar Örn Kjartansson 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31336
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31336

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hilmar Örn Kjartansson 1993-. Erlendir ferðamenn og íslensk umferðarmannvirki. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31336