Abstract
dc:description.abstractNorðurljósferðir njóta sívaxandi vinsælda í vetrarferðamennsku á Íslandi og virðist vera lítið lát á. Leitað var svara um hvaða væntingar ferðafólk hefur til norðurljósaferða, hvort myrkurgæði, sögur og leiðsögn hafi áhrif á upplifun þeirra. Markmið rannsóknar var að meta hvaða þættir hefðu áhrif á upplifun ferðafólks á Akureyri í norðurslóðaferðum og hvaða hlutverk leiðsögumaður hefur í norðurljósaferð. Farið var í norðurljósaferðir með ferðaþjónustufyrirtækjum sem bjóða upp á slíkar ferðir. Tekin voru eigindleg viðtöl við ferðafólk og þau spurð um upplifun þeirra innan ákveðins viðtalsramma. Viðtölin voru greind niður í fjögur þemu sem voru um væntingar þeirra, myrkurgæði, upplifun og sögur um norðurljós. Síðan voru dregnar saman helstu niðurstöður rannsóknar en þar kom fram að ferðafólk virtist gera sér grein fyrir að ekki var hægt að ganga að því vísu að sjá norðurljós, myrkurgæði virtust ekki hafa áhrif á upplifun þeirra og fæstir hafa heyrt sögur um norðurljós fyrr en komið var til Íslands. Það má því draga af því þá ályktun að markaðssetning norðurljósaferða á Akureyri virðist gefa raunsanna mynd af útkomu ferða. Lykilorð: Aurora Borealis, norðurljós, myrkurgæði, upplifun, leiðsögn, norðurljósasögur.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ingibjörg Smáradóttir 1968-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Hólum
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31335
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31335