Back to results

Hólar University College

Norðurljósaferðir : upplifun og væntingar ferðafólks

Abstract

dc:description.abstract

Norðurljósferðir njóta sívaxandi vinsælda í vetrarferðamennsku á Íslandi og virðist vera lítið lát á. Leitað var svara um hvaða væntingar ferðafólk hefur til norðurljósaferða, hvort myrkurgæði, sögur og leiðsögn hafi áhrif á upplifun þeirra. Markmið rannsóknar var að meta hvaða þættir hefðu áhrif á upplifun ferðafólks á Akureyri í norðurslóðaferðum og hvaða hlutverk leiðsögumaður hefur í norðurljósaferð. Farið var í norðurljósaferðir með ferðaþjónustufyrirtækjum sem bjóða upp á slíkar ferðir. Tekin voru eigindleg viðtöl við ferðafólk og þau spurð um upplifun þeirra innan ákveðins viðtalsramma. Viðtölin voru greind niður í fjögur þemu sem voru um væntingar þeirra, myrkurgæði, upplifun og sögur um norðurljós. Síðan voru dregnar saman helstu niðurstöður rannsóknar en þar kom fram að ferðafólk virtist gera sér grein fyrir að ekki var hægt að ganga að því vísu að sjá norðurljós, myrkurgæði virtust ekki hafa áhrif á upplifun þeirra og fæstir hafa heyrt sögur um norðurljós fyrr en komið var til Íslands. Það má því draga af því þá ályktun að markaðssetning norðurljósaferða á Akureyri virðist gefa raunsanna mynd af útkomu ferða. Lykilorð: Aurora Borealis, norðurljós, myrkurgæði, upplifun, leiðsögn, norðurljósasögur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingibjörg Smáradóttir 1968-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31335
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31335

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingibjörg Smáradóttir 1968-. Norðurljósaferðir : upplifun og væntingar ferðafólks. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31335