Back to results

Hólar University College

Þykkvibær sem áfangastaður ferðamanna : nýting menningararfs sem aðdráttarafls

Abstract

dc:description.abstract

Ferðaþjónusta á Íslandi hefur vaxið gríðarlega síðustu ár og hefur í kjölfarið öðlast mikilvægi á landsvísu. Þykkvibær er byggðakjarni Suðurlandi og skilgreinist staðsetning hans á jaðarsvæði. Þó hafa jaðarsvæðin ekki enn sem komið er notið góðs af þeim vexti. Lítið framboð ferðaþjónustu er í Þykkvabæ sem hefur þó aukist með árunum, en eingöngu eru í boði nokkrir mismunandi gistimöguleikar á svæðinu. Þykkvibær á sér merkilega sögu og er kartöflurækt helsta atvinnugrein íbúa, en þessa tvo þætti er hægt að skilgreina sem þeirra helsta menningararf. Meginmarkmið þessarar rannsóknar var að kanna stöðu Þykkvabæjar sem áfangastað ferðamanna og hvernig/hvort hægt væri að nýta menningararfinn sem aðdráttarafl í ferðaþjónustu. Hugtök og skilgreiningar verða skoðuð með fræðilegum hætti til þess að tengja saman við viðfangsefnið og rannsóknarspurningu. Til þess að kanna viðhorf og skoðanir heimamanna á viðfangsefninu voru tekin viðtöl við fjóra einstaklinga búsetta í Þykkvabæ. Niðurstöður rannsóknar leiddu í ljós að Þykkvibær er á byrjunarstigi hvað ferðaþjónustu varðar og hefur marga möguleika upp á að bjóða til þess að vaxa sem áfangastaður ferðamanna með nýtingu menningararfs. Viðmælendur komu fram með ýmsar hugmyndir sem gætu orðið að veruleika en voru þó sammála um að til þess að efla svæðið sem ferðamannastað þyrfti að vera afþreying í boði sem aðdráttarafl.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Stella Rúnarsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29162
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29162

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Stella Rúnarsdóttir 1992-. Þykkvibær sem áfangastaður ferðamanna : nýting menningararfs sem aðdráttarafls. 2017. http://hdl.handle.net/1946/29162