Back to results

Hólar University College

Selfoss sem áfangastaður ferðamanna : afstaða og aðkoma hins opinbera

Abstract

dc:description.abstract

Á Íslandi eykst straumur ferðamanna með hverju ári sem líður. Ferðamennirnir sækja í að skoða landið og er Suðurland engin undantekning. Selfoss er aðalþjónustukjarninn á Suðurlandi og í raun miðsvæðis enda liggur þjóðvegur 1 í gegnum Selfoss. Lítið er um afþreyingu fyrir ferðamenn en það stendur til bóta og eru áætlanir í bígerð sem snúa að uppbyggingu í ferðaþjónustu á svæðinu. Meginmarkmið þessarar ritgerðar er að finna út hvað áfangastaður þarf að hafa til að teljast góður kostur. Svo hægt verði að komast að því verður skoðað með fræðilegum hætti skilgreiningu á áfangastað ásamt því að líkön fræðimannana Gunn (2002) og Inskeep (1991) verða skoðuð og þau tengd við Selfoss svo hægt verði að greina hvar það sé staðsett í uppbyggingarferlinu. Í rannsókninni var eigindleg rannsóknaraðferð notuð og voru viðtöl tekin við þrjá einstaklinga sem tengjast Selfossi og Sveitarfélaginu Árborg með ólíkum hætti. Helstu niðurstöður rannsóknar sýna að nú þegar er hafin vinna við að efla Selfoss sem áfangastað og unnið er að stefnumótun. Þetta mun þarfnast mikillar vinnu en vonandi skilar þetta jákvæðum árangri sem styrkir Selfoss sem áfangastað ferðamanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helga Guðný Pálsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/27970
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/27970

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Guðný Pálsdóttir 1985-. Selfoss sem áfangastaður ferðamanna : afstaða og aðkoma hins opinbera. 2017. http://hdl.handle.net/1946/27970