Back to results

Hólar University College

Viðhorf sauðfjárbænda til ferðamanna í réttum

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna viðhorf sauðfjárbænda til ferðamanna sem koma í Reykjaréttir á Skeiðum og þau áhrif sem þessar heimsóknir hafa í för með sér. Eigindlegri aðferðafræði var beitt við þessa rannsókn þar sem notast var við einstaklingsviðtöl sem voru hálf-opin og fóru viðtölin fram í lok febrúar 2017. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að sauðfjárbændur sem nýta Reykjaréttir eru almennt jákvæðir í garð ferðamanna. Bændur setja þó út á skipulagsleysi í kringum réttirnar. Þeir telja nauðsynlegt að stýra betur umferð á svæðinu bæði inn í réttinni og fyrir utan þar sem fjöldi bíla leggja óskipulega og rútur stoppa upp við veg sem veldur teppu. Þar sem þetta er mjög annríkur dagur hefur reynst erfitt að komast til og frá réttunum með vélar og kerrur sem nýttar eru til þessa að flytja fé heim. Rannsókn af þessu tagi hefur ekki verið unnin áður í tengslum við réttir og ferðamenn en niðurstöður hennar ættu að nýtast sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Flóahrepps við ákvarðanatöku þegar kemur að skipulagi og stýringu í réttum. Lykilorð: Þolmörk áfangastaða og heimamanna, viðhorf heimamanna, félagsleg og menningarleg áhrif ferðamennsku, réttir og Reykjaréttir

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Unnur Hlíðberg Hauksdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/27967
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/27967

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Unnur Hlíðberg Hauksdóttir 1984-. Viðhorf sauðfjárbænda til ferðamanna í réttum. 2017. http://hdl.handle.net/1946/27967