Back to results

Hólar University College

„Karl með klikkaða hugmynd“ : uppbygging Akranesvita sem ferðamannastaðar

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um uppbyggingu Akranesvita sem ferðamannastaðar og hlutverk Hilmars Sigvaldasonar í þeirri uppbyggingu. Ritgerðin er eigindleg tilviksrannsókn sem fylgir lífssöguforminu. Hún er byggð upp á viðtölum við Hilmar Sigvaldson, ásamt því að spurningarlisti var sendur öðrum þeim sem komu að ákvörðunartöku varðandi uppbyggingu ferðaþjónustu í Akranesvita svo sem starfsmönnum Akraneskaupstaðar, Vegagerðar og kjörnum fulltrúum. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar er að uppbygging Akranesvita hafi að stóru leyti verið einstaklingsframtak í byrjun. Hugmynd sem þótti óraunhæf en fékk að lifa vegna þrautsegju eins manns. Markaðssetning vitans hefur að mestu farið fram í gegnum netið með sérstakri áherslu á samfélagsmiðla. Hilmar Sigvaldason fellur að mörgu leiti að skilgreiningunni „klassískur“ frumkvöðull, karlmaður á miðjum aldri sem ekki sér áhættu á sama hátt og aðrir. Þó er það niðurstaða ritgerðarinnar að hann myndi frekar flokkast sem lífsstíls-frumkvöðull, enda er eigin efnahagslegur ávinningur ekki markmið hans heldur uppbygging ferðaþjónustu til hagsbóta fyrir nærsamfélagið. Lykilorð: Akranes, Akranesviti, samfélagsmiðlar, lífsstílsfrumkvöðull, Hilmar Sigvaldason.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hjördís Garðarsdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Hólum

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/27918
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/27918

Chain of custody

source
Harvested from
Hólar University College
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hjördís Garðarsdóttir 1979-. „Karl með klikkaða hugmynd“ : uppbygging Akranesvita sem ferðamannastaðar. 2017. http://hdl.handle.net/1946/27918